Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Agnar Már Másson skrifar 17. október 2026 22:25 Belgísk stjórnvöld hafa fordæmt árásina. Ísraelskir landtökumenn réðust í dag á hóp evrópskra erindreka á Vesturbakkanum í Palestínu. Belgísk stjórnvöld og Ísraelsher fordæma árásina en ísraelska forsætisráðuneytið dregur frásögnina í efa.
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu og segir að belgísk stjórnvöld hafi fordæmt árásina, sem beindist meðal annars að aðalræðismanni Belgíu í Ísrael og fleiri diplómötum. Belgar fara fram á að Ísraelsmenn dragi gerendur til ábyrgðar. Ísraelsher fordæmdi einnig árásina og sagðist rannsaka atvikið, sem þeir kölluðu „alvarlegt ofbeldisverk“. Aftur á móti hefur ráðuneyti Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra dregið frásögnina í efa og gefið í skyn að um nú standi yfir „skipulögð herferð til þess að sverta orðspor Ísraelsmanna“. Í gær særðist fjöldi Palestínumanna auk Heidi Levine, blaðaljósmyndara Washington Post, í annarri árás af hálfu landtökumanna á þorp í Vesturbakkanum. Í gær gerðu landtökumenn einnig árás á palestínumenn á Vesturbakkanum á meðan ólífuuppskera stóð yfir.AP Erindrekarnir, sem eru fulltrúar Belgíu, Frakklands, Póllands og kaþólsku kirkjunnar, voru að heimsækja kristna þorpið Taybeh í nágrenni við Ramallah þegar árásin átti sér stað. Þeir höfðu sótt þorpið heim til þess að meta aðstæður á svæðinu eftir linnulausar árásir af hálfu landtökumanna undanfarna mánuði, en ólífuuppskera stendur yfir um þessar mundir á Vesturbakkanum. Á myndskeiði mátti sjá grímuklædda menn eiga í orðaskiptum við erindrekana. Belgísk stjórnvöld hafa, að sögn BBC, gefið út að rúða hafi verið brotin á bíl sem var á vegum belgísku ræðismannsskrifstofunnar auk þess sem ráðist hafi verið á Bernard Baudoux, sveitarstjóra í franska sveitarfélaginu Aulnoye-Aymeries. „Palestínumenn þurfa að þola þetta ofbeldi á hverjum degi. Landtökumenn beina spjótum sínum einnig að umfjöllun fjölmiðla og erindrekum. Það eitt að uppskera ólífur, segja fréttir eða að sinna diplómatískum skyldum sínum ætti aldrei að stefna neinum í hættu á því að verða fyrir árás,“ sagði Maxime Prevot, utanríkisráðherra Belgíu. Gideon Sa'ar, utanríkisráðherra Ísraels, hefur fordæmt árásina og kallað gerendurna ísraelska óeirðaseggi. Ráðuneytið hyggst vera í samskiptum við sendiherra viðkomandi landa. Hann tók þó fram: „Án þess að dregið sé úr alvarleika atviksins er óheppilegt að heimsóknin hafi ekki verið skipulögð ásamt Ísraelsher fyrir fram. Slíkt skipulag hefði getað hjálpað við að tryggja öryggi gestanna.“ Ísraelsher hefur sagt í yfirlýsingu að engir hermenn hafi verið á svæðinu þegar árásin átti sér stað. Í yfirlýsingu forsætisráðuneytisins er þó brýnt fyrir almenningi að sýna varkárni áður en fólk kemur sér að niðurstöðu. Myndskeið á samfélagsmiðlum „sýna ekki fram á alla atburðarásina eða ábyrgð einstaklinga,“ sagði í yfirlýsingunni þar sem tekið var fram að málið væri enn til rannsóknar. „[Þ]essar fréttir berast á sama tíma og áhyggjur eru uppi um skipulagða herferð til þess að sverta orðspor Ísraels og gyðinga sem búa í Júdeu og Samaríu [þ.e. Vesturbakkanum] á meðan hin árlega ólífuuppskera stendur yfir, og [fréttirnar] reiða sig á ýktar fyrirsagnir áður en allar staðreyndir málsins liggja fyrir. Baudoux, franski sveitarstjórinn sem á var ráðist, sagði við AFP að árásirnar væru til marks um umburðarlyndi ísraelskra stjórnvalda gagnvart ofbeldi af hálfu landtökumanna. Hann sagði að landtökumennirnir hefðu sparkað í sig, lamið sig og kastað sér í jörðina.
Palestína Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Belgía Pólland Frakkland Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira