Fótbolti

„Þetta var allt of mikið“

Aron Guðmundsson skrifar
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands vísir/Anton

Arnar Gunnlaugsson hefði ekki tekið því fyrir gluggann að vera með átta stig eftir fyrstu fjóra leiki Íslands í C-deild Þjóðadeildarinnar. Það er hins vegar staðan eftir langan glugga sem Arnar telur að sé ekki kominn til að vera.

Íslenska landsliðið sótti tvo sigra og gerði tvö jafntefli í nýafstöðnum landsleikjaglugga. Liðið er á toppi síns riðils með tveggja stiga forskot en tvö jafntefli á móti Eistlandi, sem og agabrot nokkurra leikmanna, varpa skugga á gluggann. Landsliðsþjálfarinn hefði viljað fleiri stig nú þegar tveir leikir eru eftir af riðlakeppninni.

„Átta stig. Hefði ég tekið því fyrir gluggann? Nei. En miðað við hvernig glugginn þróaðist og miðað við hvað gerðist. Þetta leið eins og fjögur ár, þessir fjórir leikir. Það gerðist eitthvað svo mikið í þessum glugga. Tveggja stiga forskot og með þetta í okkar höndum og heimaleik í lokin á móti Lúxemborg, þá er ég bara mjög sáttur,“ segir Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, í viðtali við Vísi.

Þá tekur Arnar ýmislegt jákvætt úr glugganum.

„Stefán Teitur til dæmis. Það er mér óskiljanlegt af hverju hann hefur ekki fengið meira hrós í þessum glugga. Það er ekkert sjálfgefið að miðjumaður detti í hafsent á landsliðssviðinu og standi sig eins og hann gerði í þessum leikjum. Það sýnir bara hans karakter og fótboltagreind, að hafa tæklað þetta verkefni eins vel og hann gerði. Svo fengum við kannski annað, allt aðra týpu í hægri bakverði, Mikael Neville Anderson.“

Klippa: Hefði ekki tekið þessu fyrir fram

Fjórir leikir á ellefu dögum, langt landsliðsverkefni og margt sem gerðist innan og utan vallar.

„Ég held í fyrsta lagi að þessi gluggi sé ekki kominn til að vera. Ég held að þetta hafi verið allt of mikið. Þetta var allt of mikið held ég fyrir leikmenn og fyrir teymið einhvern veginn. Ég held að gæðin hafi fengið svolítið að falla undir lokin, ekki bara hjá okkur heldur hjá vel flestum.“

Spjallið við Arnar um nýafstaðinn landsleikjaglugga má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×