Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Freyja Þórisdóttir skrifar 16. október 2026 20:03 Unnur Berglind Friðriksdóttir er formaður Ljósmæðrafélags Íslands. Myndin er af fæðingardeild Landspítalans og er úr safni. Vísir/Vilhelm Á þriðja tug kvenna kusu að fæða án aðstoðar heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi á árunum 2022 til 2025. Formaður Ljósmæðrafélags Íslands telur aukinn fjölda mæðra sem kjósa þessa leið vera tilkominn vegna áhrifa frá Bandaríkjunum þar sem konur þurfa að borga fyrir aðkomu ljósmæðra. Þá hafi hún áhyggjur af ljósmæðrum sem séu settar inn í slíkar aðstæður of seint.
Í skýrslu sem var gefin út í morgun kemur fram að í það minnsta tuttugu og þrjár konur á Íslandi hafi á síðustu árum fætt börn án þess að ljósmóðir, læknir eða annar heilbrigðisstarfsmaður væri viðstaddur. Algeng val vestanhafs „Þetta er sem sagt hreyfing sem kemur upphaflega frá Bandaríkjunum og í Bandaríkjunum erum við að tala um allt annað heilbrigðiskerfi heldur en hérna á Íslandi,“ sagði Unnur Berglind Friðriksdóttir í Reykjavík síðdegis í dag en hún er formaður Ljósmæðrafélags Íslands. Þá útskýrði hún frekar að sú ákvörðun kvenna að fæða án aðkomu heilbrigðisstarfsmanna væri að færast í aukana hérlendis en að í Bandaríkjunum, þar sem sú leið væri algengari en hér, fengi læknir greitt fyrir hverja fæðingu. „Í Bandaríkjunum er þetta mjög sjúkdómsmiðað,“ sagði hún og bætti við að þar væri einnig miklu minna um menntaðar ljósmæður. „Þetta eru konur sem vilja ekki fara í þetta læknismiðaða umhverfi sem er í Bandaríkjunum og þetta er líka dýrt og það er ekki mikið af menntuðum ljósmæðrum í Bandaríkjunum. Ef þú ætlar að fá ljósmóður til þess að vera með þér í fæðingu í Bandaríkjunum þá er erfitt að finna ljósmóður og þær þurfa að borga það úr eigin vasa,“ sagði Unnur og ítrekaði að: „Hérna á Íslandi erum við bara í allt öðru kerfi.“ Viðtalið við Unni má finna í spilaranum hér fyrir ofan. Þá sagði hún þessa fæðingu án allrar aðkomu heilbrigðisstarfsfólks alls ekki vera það sem sé kölluð hin hefðbundna heimafæðing. „Þetta er allt annað af því að hérna á Íslandi þurfa konur ekki að borga fyrir heilbrigðisþjónustu á meðgöngu og þær þurfa ekki að borga fyrir fæðinguna og það þarf ekki að borga fyrir þjónustuna eftir fæðingu. Þetta er allt frítt hérna.“ Ekki að ástæðulausu Erfitt væri að segja til um skýringuna með vissu því að hér sé val um hvar sé fætt, hvort það sé gert á fæðingarheimili eða heima við, hvaða ljósmóðir sé viðstödd og þar fram eftir götunum. Eitt sem gæti spilað inn í valið væri að vilja ekki vera hluti af heilbrigðiskerfinu. „Meirihlutinn held ég að séu íslenskar konur og þetta eru bara konur sem vilja ekki vera hluti af kerfinu,“ sagði Unnur aðspurð hvers lenskar konurnar væru. „Við höfum heyrt svolítið að við séum ofurseldar kerfinu og af því að við þurfum að fylgja ákveðnu verklagi en verklagið sem við erum að vinna eftir byggist á rannsóknum og gagnreyndri þekkingu. Allar þessar skimanir sem við erum að bjóða konum upp á meðgöngu sem eru valfrjálsar, það er ástæða fyrir þessu,“ sagði Unnur. Við erum ekki að gera eitthvað svona að óþörfu. Þá sagði hún eitthvað vera um að börn væru að dúkka upp sem væru ekki með kennitölu. „Ef þetta eru börn sem eru að koma yfir landamærin, vitum við ekki hvort þetta séu vel upplýstar sjálfstæðar konur eingöngu. Svo getur þetta líka verið hluti af mansali og konur sem eru í mjög bágri stöðu sem vita ekki hvert þær geta leitað og hvar þær geta fengið þjónustuna,“ sagði hún og bætti við: „Þetta er allur skalinn.“ Er nýfætt barn í lífshættu þegar það kemur í heiminn undir svona kringumstæðum? „Það fer bara eftir aðstæðum,“ sagði Unnur en það væri gríðarlega mikilvægt að vera vakandi fyrir þessu og sérstaklega þar sem okkur grunar að konur og börn séu í bágum aðstæðum. Réttindi móður og barns stangist á Ýmislegt geti komið upp á við fæðingu og það sem ljósmæður séu einna hræddastar við sé þegar upp komi blæðingar eftir fæðingu. „Af því að þær gerast svo hratt og þær geta verið svo hættulegar,“ sagði Unnur og nefndi fleira sem kæmi til með að koma upp á „svo geta börnin þurft aðstoð. Þau geta verið aðeins slöpp og þurft smá aðstoð eftir fæðingu.“ Hún telji dæmi um að börn sem séu ekki í kerfinu, og þá ekki með kennitölu, fari ekki í leikskóla né grunnskóla. Réttindi konunnar til að afþakka þjónustu og réttindi barnsins til þess að fá þjónustuna stangist stundum á. Kona þurfi ekki að þiggja þjónustuna en sú staða komi þá mögulega upp seinna meir ef barnið veikist og þurfi inngrip heilbrigðisstarfsfólks. Því sé gefin kennitala sem gildi bara þessa einu heimsókn. Hvað gerist ef barnið veikist? Þú ert þá á heilsugæslu eða eitthvað eða spítala? Já. Og það er ekki með kennitölu, hvað gerist þá? „Já, það er það sem hefur verið að koma upp og náttúrulega fá öll börn þjónustu en ef þau eru ekki skráð í kerfið og hafa ekki kennitölu þá er bara búin til gervikennitala í það skipti. Þannig að hver heimsókn er ný kennitala þannig að það er ekki hægt að sjá samfelluna,“ sagði Unnur. Áhyggjur af ljósmæðrunum Fyrstu tvo sólarhringana eftir að barn komi í heiminn sé margt sem þurfi að skoða. „Þegar barn fæðist þá er gert heildrænt mat á barninu. Það hefur verið athugað með vöðvaspennuna, litarháttinn, öndunina, hjartsláttinn og hvort barn þurfi einhvern stuðning,“ sagði hún. Tilvik séu mjög mismunandi og sumar tilvonandi mæður velji að hitta ljósmóður einu sinni fyrir fæðingu eða einu sinni eftir að hafa átt barnið. Það eru konur sem þiggja alla mæðravernd en vilja ekki fá aðstoð í fæðingunni. Í skýrslunni, sem unnin var af starfshópi skipuðum af heilbrigðisráðherra, er lagt til að verklag við vottun fæðinga verði samræmt og að foreldrar fái skýrar upplýsingar um mikilvægi þess að leita til heilbrigðisstarfsmanns innan 48 klukkustunda frá fæðingu. Unnur segir að það sé einnig áhyggjuefni hvaða aðstæður ljósmæður séu settar í. „Þegar þær eru kallaðar til í fæðingu þar sem konan hefur ekki fengið neinar skimanir á meðgöngu og þú veist, ekkert, það er ekki búið að fara í sónar, engar blóðprufur, ekki neitt. Það er kannski allt komið í vitleysu, ljósmóðir mætir á svæðið. Hver er aðstaða ljósmóðurinnar? Ef allt fer á versta veg,“ sagði hún. „Konan er búin að taka þetta upplýsta val alla meðgönguna fyrir sig og sitt ófædda barn en svo er það ljósmóðirin sem kemur inn í þessar aðstæður sem ég hafði líka áhyggjur af.“
Heilbrigðismál Barnalán Félagasamtök Börn og uppeldi Reykjavík síðdegis Meðganga Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Sjá meira