Upp­gjörið: Breiða­blik - Kefla­vík 3-1 | Breiða­blik vann í nepjunni í Kópa­voginum

Hjörvar Ólafsson skrifar
Breiðablik hefur lítið til að spila upp á í Bestu deildinni.
Breiðablik hefur lítið til að spila upp á í Bestu deildinni. Guðmundur/Vísir

Breiðablik lagði Keflavík að velli með þremur mörkum gegn einu þegar liðin áttust við í 25. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Eikarvellinum í Kópavogi í kvöld.

Fyrri hálfleikur nokkuð tíðindalítill og liðin sköpuðu fá opin færi. Breiðablik var meira með boltann en Keflavík freistaði þess að særa Blika með skyndisóknum sínum.

Viktor Karl Einarsson sá til þess að Breiðabik fór með 1-0 forystu inn í búningsklefa í hálfleik með marki sínu eftir tæplega 20 mínútna leik.

Óli Valur Ómarsson átti þá góðan sprett upp hægri vænginn og fann Viktor Karl einan á auðum sjó í vítateig Keflavíkur. Viktor kláraði færið með smekklegu skoti.

Keflvíkingar komust nærri því að jafna metin um miðjan seinni hálfleik. Eiður Orri Ragnarsson og Stefan Alexander Ljubicic áttu þá báðir skot í stöngina og hurðin skall nærri hælunum hjá Blikum.

Það var því nokkuð gegn gangi leiksins þegar Jónatan Guðni Arnarsson tvöfaldaði forskot Breiðabliks með snotru marki. Jónatan Guðni setti boltann huggulega upp í samskeytin frá vítateigshorninu.

Eiður Orri minnkaði muninn fyrir Keflavík þegar um það bil stundarfjórðungur var eftir af leiknum. Alpha Conteh setti Eið í gegn og kantmaðurinn knái skoraði með föstu skoti.

Höskuldur Gunnlaugsson fékk svo fallega gjöf frá Nacho Heras í uppbótartíma seinni hálfleiks. Höskuldur komst þá inn í sendingu Nacho til baka, lék á Ásgeir Orra Magnússon og setti boltann í tómt markið. Niðurstaðan 3-1 sigur Breiðabliks.

Atvik leiksins

Ekki úr mörgu að velja í þessum fremur tíðindalitlta leik. Mörkin sem Viktor Karl og Jónatan Guðni skoruðu voru snotur og það sem gladdi augað einna helst. Eiður Orri hleypti svo lífi í lokakafla leiksins með marki sínu. Höskuldur batt svo endahnútinn á sigur Blika.

Stjörnur og skúrkar

Óli Valur var sprækur í sóknarleiknum í hægri bakvarðarstöðunni. Viktor Karl kom Brereiðabiki á bragðið. Jónatan Guðni átti nokkrar góðar tilraunir að marki Keflavíkur og ein þeirra endaði með glæsilegu marki.

Höskuldur Gunnlaugsson átti svo fínan leik inni á miðsvæðinu og Gylfi Berg Snæhólm steig engin feilspor í frumraun sinni í efstu deild og varnarlína Blika var solid.

Dagur Ingi Valsson var lúsiðinn við það að skapa usla í vörn Breiðabliks. Sama má segja um Eið Orra sem skoraði sömuleiðis gott mark. Ásgeir Orri Magnússon var svo öruggur í sínum aðgerðum í marki gestanna.

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Arnar Ingi Ingvarsson, Patrik Freyr Guðmundsson, Eðvarð Þór Eðvarðsson og Gunnar Oddur Hafliðason, fengu nokkuð þægilegt verkefni í Kópavoginum í kvöld og skiluðu því af sér með sóma. Þeir fá þar af leiðandi sjö í einkunn fyrir fagmannleg störf sín.

Stemming og umgjörð

Rólegt og rómantískt eins og á Létt Bylgjunni í Smáranum að þessu sinni. Rjúkandi kaffi á boðstólnum og svalandi drykkir. Allt eins og það á að vera eins og Stefán Hilmarsson söng í angurværu lagði Sálarinnar hans Jóns míns.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira