Upp­gjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti

Hjörvar Ólafsson skrifar
Fram - KR Fram - KR besta deild karla fótbolti
Fram - KR Fram - KR besta deild karla fótbolti Anton/Vísir

KR náði fjögurra stiga forskoti á Fram í baráttu liðanna um annað sæti Bestu-deildar karla í fótbolta með 2-1 sigri í leik liðanna í 25. umferð deildarinnar á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í kvöld.

Það var boðið upp á mikla baráttu og mikinn hasar þegar liðin leiddu saman hesta sína. Leikmenn beggja liða voru greinilega hungraðir í að spila mótsleik eftir langa bið og voru eins og kálfar að vori. 

Framarar voru heilt yfir sterkari aðilinn í þessum leik en það var Aron Sigurðarson sem kom gestunum úr Vesturbænum yfir eftir sjö mínútna leik. 

Aron átti þá skot sem var á leiðinni í fjærhornið en Kennie Chopart breytti um stefnu skotsins sem fór framhjá Viktori Frey Sigurðarsyni. 

Framarar knúðu dyra upp við mark KR-inga og sóknarþungi heimanna bar árangur um miðjan fyrri hálfleik. 

Leikmenn Fram stimpluðu þá boltann eins og handboltalið fyrir utan vítateig KR og boltinn endaði hjá Þorra Stefáni Þorbjörnssyni sem skorði með hnitmuðu skoti í nærhornið. 

Sami barningur hélt áfram í seinni hálfleik og leikmyndin svipuð og í þeim fyrri. Framarar komu sér í þó nokkur skipti í góðar stöður og létu skotunum rigna á markramma KR án þess að ná að koma boltanum í netið. 

Það var svo Arnór Ingvi Traustason sem skoraði markið sem skildi liðin að eftir tæplega klukkutíma leik. Aron átti þá hárnækvæma sendingu fyrir og Arnór Ingvi skoraði með góðu slútti. 

KR hefur nú 50 stig í öðru sæti deildarinnar og er i bílstjórasætinu í rimmunni um að lenda í öðru sæti þar sem Fram hefur 46 stig i þriðja sæti. 

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, á hliðarlínunni á leik hjá liðinu.Vísir/Guðmundur

Rúnar: Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina

„Við sköpuðum hvað eftir annað góðar stöður og fegnum urmul af færum til þess að skora fleiri mörk. Það vantaði kannski aðeins gæðin í lokasendingarnar og hvernig við klárum færin til þess að við myndum ná að binda endahnútinn á lofandi sóknir okkar,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, eftir leik.

„Þeir eiga tvö skot á markið og þau fara bæði inn þannig að ég held að það sé óhætt að segja að þetta séu ekki sanngjörn úrslit. Við erum vonsviknir að fá ekkert út úr þessum leik en svona er fótboltinn. 

Ég held að það hafi ekki gerst oft í sumar að lið hafi náð að halda KR svona mikið frá boltnum og skapa jafn mörg færi við gerðum á móti þeik. Frammistaðan var flott en niðurstaðan að sama skapi svekkjandi,“ sagði Rúnar enn fremur. 

„Það vantaði ekkert upp á orkustigið hjá Framliðinu og þetta var bara hörku skemmtilegur leikur. Við vildum fá eitthvað út úr honum en náðum ekki að nýta okkur yfirburðina,“

Óskar Hrafn: Í fyrsta skipti sem við vinnum ósanngjarnt

„Við komum eitthvað skakkir inn í þennan leik og náðum aldrei takti í spilið okkar. Framliðið náði að herja vel á okkur en við börðumst með kjafti og klóm fyrir stigunum þremur,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, að leik loknum.

„Það vantaði ekkert upp á viljann og karakterinn hjá mínum leikmönnum. Leikmenn eins og Aron Þórður, sem hefur lítið spilað í sumar, sýndu mikinn anda og liðið hjálpaðist að við að sigla sigrinum í höfn,“ sagði Óskar Hrafn þar að auki. 

„Ég held að ég geti sagt að sigrarnir okkar í sumar hafi allir verið sanngjarnir og þetta hafi verið í fysta skipti þar sem við vinnum þrátt fyrir að vera undir í tölfræðiþáttum leiksins. Fram er lið sem hentar okkur illa og þetta var ekki sanngjarn sigur en við unnum svo sannarlega fyrir honum,“ sagði hann. 

„Við erum komnir með 50 stig sem er ljómandi fínn árangur og eigum núna fjögur stig á Fram. Ég ætla að leyfa mér að fara bara glaður inn í þetta laugardagskvöld þrátt fyrir að frammistaðan hafi ekki verið frábær. Það er ákveðið styrkleikamerki að knýja fram sigur þar sem við spilum ekki okkar besta leik úti á vellinum,“ sagði Óskar.

Óskar Hrafn Þorvaldsson var sáttur við sigurinn og baráttuandann. Vísir/Anton Brink

Atvik leiksins

Leikmenn einkenndist af mikilli stöðubaráttu þar sem leikmenn tókust harkalega á án þess þó að kappið bæri fegurðina ofurliði. Það var mikið um návígi en inn á milli sáust þó lipur tilþrif. Þar voru Aron Sigurðarson og Fred í aðalhlutverki og glöddu augað með töktum sínum inn á milli tæklinganna. 

Stjörnur og skúrkar

Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, varði nokkrum sinnum meistaralega og var heilt yfir öruggur í sínum aðgerðum. Arnór Ingvi hafði í nógu að snúast inni á miðsvæðinu og tryggði stigin þrjú fyrir KR. 

Aron skoraði fyrra markið og lagði upp það seinna. Þá losaði hann oft pressu Framliðsins einn síns liðs með einstaklingsgæðum sínum. Luke Rae var svo lúsiðinn að vanda.

Þorri Stefán skoraði snoturt mark og var öflugur þess  utan í leiknum. Freyr Sigurðarson er mótorinn í liði Fram og hann var út um allan völl í kvöld að vinna bolta og skapa usla. 

Það er svo í raun ótrúlegt að Fred hafi ekki lagt upp mark eða skorað sjálfur í þessum leik þar sem hann skapaði sér ótal stöður fyrir sjálfan sig og samherja sína sem ekki tókst að nýta. 

Már Ægisson var hættulegur og aðsópsmikill á hægri kantinum náði að halda kantmönnum KR-liðsins að mestu leyti í skefjum.  

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Ívar Orri Kristjánsso, Birkir Sigurðarson, Eysteinn Hrafnkelsson og Þórður Þorsteinsson Þórðarson tókst vel upp við að halda flæði leiksins gangandi fyrir utan eitt skipti þar sem Ívar Orri var of bráður að flauta þegar Freyr náði að setja Kennie í góða stöðu þrátt fyrir að brotið væri á honum. 

Þess utan dæmdu þeir leikinn heilt yfir vel, leyfðu hæfilega mikið og misstu harðan leik ekki úr höndunum eða minnkuðu hraðann eins og auðvelt hefði verið að gera. 

Þeir félagar fá átta í einkunn fyrir vel unninn störf. 

Stemming og umgjörð

Rúmlega 1100 stuðningsmenn liðanna sem lögðu leið sína í Dal draumanna í kvöld létu vel í sér heyra, sungu og trölluðu og sköpuðu góða stemmingu. 

Gaman var að sjá gullaldarlið Fram frá 1985 til 1990 fá sviðið fyrir leik og njóta þeirrar hylli sem þeir eiga svo sannarlega skilið. 

Þjónusta við blaðamenn er ávallt fyrsta flokks í Úlfarsárdalnum og það varð engin breyting á því að þessu sinni. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira