Erlent

Yfir sjö­tíu þúsund mót­mæltu þrátt fyrir til­lögur um betrumbætingar

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Um 25 þúsund mótmæltu í París.
Um 25 þúsund mótmæltu í París. AP

Um 25 þúsund menntaskólanemendur komu saman á Place de la Bastille og héldu áfram mótmælunum sínum í þágu betra menntakerfis. Þúsundir hafa verið handteknir, flestir undir átján ára aldri.

Mótmælin hófust 17. september í úthverfi Parísarborgar en hafa dreifst út um allt land. Mikill fjöldi nemenda, kennara, foreldra og annarra sem styðja mótmælin hélt út á götur í gær og tók þátt í mótmælum sem voru að mestu leyti friðsæl. Mótmælin fóru meðal annars fram í borgunum Lille, Rennes, Nantes, Lyon, Toulon og Marseille. 

Innviðaráðuneyti Frakklands telur að 71.500 manns hafi mótmælt í gær, þar af tæplega 25 þúsund í París. 375 menntaskólum var lokað vegna þeirra.

Menntaskólanemendurnir eru að mótmæla lélegum námsskilyrðum, svo sem yfirfullum kennslustofum, skólabyggingum í niðurníðslu og undirmönnun kennara. Hundruðum skóla hefur verið lokað vegna mótmælanna síðustu daga.

Mótmælin voru að mestu leyti friðsæl í gær.AP

Í París hópuðust mótmælendur saman á Place de la Bastille, torgi með minnisvarða um frönsku byltinguna árið 1830, veifuðu fánum og sungu þjóðsönginn, Marseillaise. Þegar leið á kvöldið fór óeirðalögreglan að hafa afskipti af mótmælunum samkvæmt The Guardian og notaði táragas til að skipta upp hópnum. 

Einhverjir mótmælenda hentu flöskum, steinum og öðrum hlutum í lögregluna. Ofbeldi og óeirðir hafa einkennt mótmælin síðustu daga þar sem ítrekað hefur komið til átaka á milli mótmælenda á unglingsaldri og lögreglunnar. 

Fimmtán ára drengur missti aðra höndina og annar sextán ára nemandi missti sjón á hægra auga eftir að hafa fengið gúmmíkúlu frá lögreglunni í andlitið.

Um 6.600 mótmælendur hafa verið handteknir, flestir þeirra eru undir átján ára aldri samkvæmt Euronews.

Ráða þrjú þúsund afleysingakennara

„Kröfur nemendanna eru mjög svipaðar og kröfurnar sem kennarar hafa gert árum saman. Kerfinu hefur hnignað og það er vegna þess að það hafa ekki verið nein viðbrögð,“ er haft eftir Cathy, sögukennara í menntaskóla í París, í umfjöllun Euronews.

Édourard Geffrey, menntamálaráðherra Frakklands, gaf út í gær að þrjú þúsund afleysingakennarar yrðu sendir í skólana þar sem mikill skortur er á kennurum. Þá lofaði Sébastien Lecournu að ríkisstjórnin myndi leggja fram breytingartillögur við fjárlög ársins 2027 til að „breyta sumum kröfum nemendanna í áþreifanlegar aðgerðir, einkum hvað varðar afleysingar kennara“.

Þessar tillögur reynast þó ekki nægilegar fyrir alla og hyggjast þau halda áfram að mótmæla þar til fjárfest verði í skólakerfinu fyrir tíu milljarða evra. Sú upphæð er talin af mótmælendunum vera það sem þarf til að breyta skólakerfinu til hins betra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×