Sport

Dag­skráin í dag: Bónus-deildin hefst með látum

Andri Broddason skrifar
Miklar breytingar hafa verið á liði Stjörnunnar fyrir tímabilið.
Miklar breytingar hafa verið á liði Stjörnunnar fyrir tímabilið. Vísir/Ernir

Bónus-deild karla er loksins að hefjast og verður nóg um að vera þar sem deildin byrjar á fjórum leikjum sem allir eru á sama tíma. 

Mikil spenna er fyrir Bónus-deild karla þar sem mörg lið eru búin að styrkja sig og spennandi verður að sjá hvernig liðin koma undan sumri. Allir fjórir leikirnir verða spilaðir á sama tíma og hefst útsending á leikjunum klukkan 19:05. Leikur Vals og Stjörnunnar verður á Sýn Sport Ísland 2, leikur Ármanns og Keflavíkur verður á Sýn Sport Ísland 3, leikur Sindra og ÍR verður sýndur á Sýn Sport Ísland 4 og leikur Álftanes og Hattar verður sýndur á Sýn Sport Ísland 5.

Fyrir þá sem vilja fylgjast með öllum leikjunum þá verður Skiptiborðið á dagskrá klukkan 19:10 á Sýn Sport Ísland. Þar munu sérfræðingar Sýnar Sport fara yfir allt það helsta sem mun gerast í öllum leikjunum. Eftir að leikirnir klárast taka Tilþrifin við þar sem farið verður yfir allt sem gerðist um kvöldið á léttu nótunum. Þau hefjast klukkan 21:15 á Sýn Sport Ísland.

Opna spænska mótið í golfi hefur göngu sína á morgun á DP World-mótaröðinni. Mótið fer fram á Real Club de Campo Villa de Madrid og má búast við hörkuspennandi keppni. Útsending frá mótinu hefst klukkan 12:00 á Sýn Sport 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×