Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Kjartan Kjartansson skrifar 6. október 2026 08:31 Donald Trump Bandaríkjaforseti samþykkti að taka fjöldamorðingja af lífi með aftökusveit. AP/Alex Brandon Bandaríska varnarmálaráðuneytið segist ætla að taka fyrrverandi majór í hernum sem framdi mannskæða skotárás í herstöð af lífi með aftökusveit. Þetta verður í fyrsta skipti sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Peter Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna og fyrrverndi sjónvarpsmaður, er sagður hafa lagt fram tillögu um að Nidal Malik Hasan yrði skotinn til bana af aftökusveit. Donald Trump forseti hefði samþykkt tillöguna, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn til bana í Fort Hood-herstöðinni í Texas og særði 32 aðra árið 2009. Hann var geðlæknir hjá Bandaríkjaher frá Virginíu. Við herréttarhöld árið 2013 gerði Hasan takmarkaða tilraun til þess að verja sig. Hann sagðist hafa viljað koma í veg fyrir að hermennirnir færu til Afganistan og dræpu múslima. Langflestar aftökur í Bandaríkjunum eru á vegum yfirvalda í einstökum ríkjum. Forseti þarf að samþykkja sérstaklega aftökur á vegum Bandaríkjahers. Áfrýjunardómstóll þarf einnig að leggja blessun sína yfir aftökur hersins. Dauðadómar innan hersins eru afar fátíðir og aftökur enn sjaldgæfari. Síðast tók herinn óbreyttan hermann af lífi fyrir að nauðga telpu árið 1961, að sögn AP-fréttastofunnar. Aftökur með aftökusveit eru almennt fremur fátíðar í Bandaríkjunum. Yfirvöld í Suður-Karólínu tóku mann af lífi með aftökusveit í fyrra en það var fyrsta aftakan af því tagi í fimmtán ár. Fjögur önnur ríki leyfa af aftökusveitir taki menn af lífi.
Bandaríkin Dauðarefsingar Seinni heimsstyrjöldin Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira