„Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ Sindri Sverrisson skrifar 3. október 2026 18:40 Arnar Gunnlaugsson hafði margt að gleðjast yfir í dag en greindi mikil þreytumerki á sínu liði. vísir/Anton „Þetta var sterkur sigur,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari eftir annan 3-0 sigur Íslands í röð. Liðið vann Búlgaríu í dag á Laugardalsvelli og er efst í sínum riðli með sjö stig eftir þrjá leiki í C-deild Þjóðadeildarinnar. „
Við fengum ekki á okkur mark heldur sem er alltaf mjög sterkt. Miðað við hvað völlurinn bauð okkur upp á í dag þá var þetta leikur mistaka, sleipur völlurinn og erfiðar aðstæður, en við héldum haus. Það voru þreytumerki. Það sást í fjölda tæknifeila sem við áttum. En mörkin voru góð og við héldum markinu hreinu og það var mjög ánægjulegt,“ sagði Arnar en viðtalið við hann má sjá hér að neðan. Klippa: Viðtal við Arnar eftir sigurinn á Búlgaríu Ísland hefur nú spilað þrjá leiki á aðeins átta dögum og á enn eftir leikinn við Eistland í Tallinn næsta þriðjudag. Því er eflaust orðið nokkuð um þreytta fætur í hópnum. „Mér fannst við díla við þetta ágætlega. Andri Lucas fékk 45 mínútur. Það var mjög mikilvægt að hvíla hann en hann er búinn að gefa okkur mikið meira en við þorðum að vona í þessum leikjaglugga. Gylfi fékk 45 mínútur, eða aðeins minna og mjög leiðinlegt að hann hafi meiðst í rifbeininu. En mér fannst við ná að stýra álaginu. Danni [Daníel Leó Grétarsson] var þreyttur eftir Lúxemborg og fékk líka 45 mínútur… Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku. Hann var geggjaður í leiknum. Hrikalega gaman að sjá hann spila einn af sínum betri landsleikjum. Mér fannst þetta nokkuð vel stýrt hvað mínútufjölda varðar. Hákon Arnar og Orri fyrirliði reyndar búnir að spila allt of mikið en miðað við hvernig þetta hefur þróast er ég nokkuð ánægður með hvernig við náðum að stýra þessu í dag,“ sagði Arnar.
Þjóðadeild karla í fótbolta Landslið karla í fótbolta Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Enski boltinn FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal - Everton | Þurfa sigur til að halda í við toppliðið KR - Breiðablik | Slær Aron markametið? ÍA - Keflavík | Geta náð besta árangri í mörg ár FH - Þór | Ævintýri Þórsara fullkomnað? KA - ÍBV | Taka gestirnir KA-menn með sér niður? Stjarnan - Valur | Kveðjustund í Garðabæ Emelía skoraði tvennu í mikilvægum sigri Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Dómur í Maradona-málinu fellur í desember Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Sjá meira