„Get ekki beðið um mikið meira“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. september 2026 21:20 Andri Lucas og Mikael Egill fagna saman eftir mark Andra Mynd: KSÍ Andri Lucas Guðjohnsen skoraði og lagði upp fyrir íslenska landsliðið í knattspyrnu er liðið vann öruggan 0-3 sigur gegn Lúxemborg í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinnar í kvöld. „
Já, eiginlega,“ sagði Andri Lucas er hann var spurður að því hvort þetta hafi verið fullkominn leikur af hálfu íslenska liðsins. „Við skorum þrjú mörk og höldum hreinu. Við skoruðum báðir framherjarnir þannig að ég get ekki beðið um mikið meira,“ bætti Andri Lucas við. Andri kom íslenska liðinu á bragðið er hann skoraði fyrsta mark liðsins, eftir stoðsendingu frá Orra Steini Óskarssyni. Sama tvíeyki var svo aftur á ferðinni í öðru marki leiksins þegar Andri lagði upp fyrir Orra með frábærri sendingu. „Ég leit einmitt bara yfir hægri öxlina, hvort að hann væri ekki alveg örugglega í stöðu til að taka hlaup í gegn og ég ákvað að koma honum bara þarna í svæðið og hann gerir virkilega vel til að taka á móti honum og bara koma sér einn á móti markmanni. Og hann skorar flott mark þannig bara þvílík ánægja með það.“ Þetta var fyrsti sigur íslenska liðsins í tíu mánuði og eðlilega var það mikill léttir að ná loksins að landa sigri. „Léttirinn er mikill. Það er alltaf gaman að vinna leiki og hvað þá landsleiki. Stemningin hefur verið góð, en við vorum svekktir eftir leikinn á móti Eistlandi. En ég meina, þrjú stig í dag og við erum komnir á toppinn. Það er bara fá fókus á Búlgaríu núna.“ Andri Lucas var þó ekki eini Guðjohnsen-bróðirinn sem skoraði í dag því litli bróðir hans, Daníel Tristan Guðjohnsen, skoraði tvívegis er íslenska U-21 árs landsliðið vann 5-1 stórsigur gegn Sviss. „Ég sendi honum skilaboð en ég á eftir að heyra í honum. Ætli ég fari ekki bara í sturtu núna og koma mér upp á hótel og hringi svo í kappann,“ sagði Andri Lucas léttur að lokum. Klippa: Andri Lucas eftir sigur gegn Lúxemborg
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Tengdar fréttir „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ Guðlaugur Victor Pálsson skoraði þriðja mark íslenska landsliðsins er liðið vann sterkan 3-0 sigur gegn Lúxemborg í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. 29. september 2026 21:08 „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ „Mér líður vel. Ekki nógu vel samt. Það eru tveir leikir eftir í þessum glugga. Við erum ennþá hungraðir,“ segir landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson eftir 3-0 sigur Íslands á Lúxemborg í Þjóðadeild karla ytra í kvöld. 29. september 2026 20:56 Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Það var út á fáa leikmenn að setja eftir góðan 3-0 sigur Íslands á Lúxemborg í Þjóðadeild karla í fótbolta ytra í kvöld. Flestir, ef ekki allir, stóðu sína pligt en Andri Lucas Guðjohnsen fremstur meðal jafningja. 29. september 2026 20:38 Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Sjá meira
„Langt síðan við unnum fótboltaleik“ Guðlaugur Victor Pálsson skoraði þriðja mark íslenska landsliðsins er liðið vann sterkan 3-0 sigur gegn Lúxemborg í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. 29. september 2026 21:08
„Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ „Mér líður vel. Ekki nógu vel samt. Það eru tveir leikir eftir í þessum glugga. Við erum ennþá hungraðir,“ segir landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson eftir 3-0 sigur Íslands á Lúxemborg í Þjóðadeild karla ytra í kvöld. 29. september 2026 20:56
Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Það var út á fáa leikmenn að setja eftir góðan 3-0 sigur Íslands á Lúxemborg í Þjóðadeild karla í fótbolta ytra í kvöld. Flestir, ef ekki allir, stóðu sína pligt en Andri Lucas Guðjohnsen fremstur meðal jafningja. 29. september 2026 20:38