Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Samúel Karl Ólason skrifar 17. september 2026 10:07 Frá jarðarför Díönu árið 1997. Á myndinni má sjá þá prinsana Filippus og Vilhjálm. Því næst er Charles Spencer, bróðir Díönu. Við hlið hans er svo Harry og þar næst Karl konungur. AP/Jeff J. Mitchell Talsmenn bresku konungsfjölskyldunnar segja að Karl konungur hafi ekki haldið því fram að Díana prinsessa, fyrrverandi eiginkona hans, myndi fljótt gleymast. Þessu heldur Charles Spencer, bróðir Díönu, fram að Karl hafi kastað fram skömmu eftir að hún lét lífið árið 1997.
Í nýrri bók sem gefa á út í næstu viku rifjar Spencer upp dagana eftir að Díana dó í bílslysi í París, 36 ára gömul. Hann segist hafa lent í rifrildi við Karl um þær áætlanir konungsfjölskyldunnar að láta Vilhjálm og Harry, syni Karls og Díönu, sem voru þá fimmtán og tólf ára gamlir, ganga á eftir kistu hennar í jarðarförinni. Spencer heldur því fram að hann hafi sagt Karli konungi, sem var þá prins, að systir hans hefði ekki viljað leggja það á syni sína. Við það á Karl að hafa sagt við Spencer: „Hafðu engar áhyggjur. Við munum gleyma henni fljótt.“ Spencer, sem er breskur jarl, segir Karl hafa sýnt Díönu fyrirlitningu. Díana prinsessa var 36 ára gömul þegar hún dó í bílslysi í París.AP/Rick Rycroft Buckingham-höll sendi í gærkvöldi út yfirlýsingu sem þykir merkilega harðorð, miðað við aðrar yfirlýsingar konungsfjölskyldunnar. „Þótt við tjáum okkur ekki um bækur af prinsippástæðum, er hans hátign meðvitaður um að sá sársauki sem fylgir missi systkins getur haft áhrif á skynsemi, skekkt dómgreind og litað minningar á margan hátt sem aðrir gera sér ef til vill ekki grein fyrir, jafnvel mörgum árum eftir slíkan missi.“ Karl Bretlandskonungur.AP/Jonathan Brady BBC segir yfirlýsinguna minna á svör Elísabetar drottningar um ásakanir varðandi það að hún hafi sýnt rasisma þegar hún á að hafa spurt hversu dökkur Archie, sonur Harry og Maghan Markle, gæti orðið. Sjá einnig: Hvorki Elísabet né Filippus ræddu húðlit Archie Þegar Díana lét lífið var konungsfjölskyldan sökuð um að sýna ekki nægilega mikla samkennd og átta sig ekki á sorg bresku þjóðarinnar. Spencer hélt ræðu í jarðarförinni þar sem hann talaði um að verja þá Vilhjálm og Harry svo þeir þyrftu ekki að ganga í gegnum þjáningar móður þeirra. Þótti það, og önnur ummæli í ræðu hans, vera gagnrýni á konungsfjölskylduna.
Kóngafólk Bretland Karl III Bretakonungur Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira