„Svona er bara litróf mannlífsins“ Eiður Þór Árnason skrifar 6. september 2026 18:32 Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdarstjóri Hopp Reykjavík, segir erfitt að koma í veg fyrir öll mál. Vísir/Vilhelm Framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík segir að mál ökumanns sem keyrði á ofsahraða um götur borgarinnar í dag og keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar á meðan eftirför stóð yfir sé hjá lögreglu og fyrirtækið kanni næstu skref. Almennt sé ökumönnum sem brjóti reglur hiklaust meinað að nýta sér þjónustuna oftar. „
Okkur þykir alltaf leiðinlegt þegar ökumenn lenda í vandræðum á bílunum okkar en ég get ekkert tjáð mig sérstaklega um þetta mál, segir Kristín Hrefna Halldórsdóttir í samtali við Vísi. Það sé algjör undantekning að leigutakar hjá Hopp fylgi ekki reglum. „Langsamlega flestir þeirra ökumanna sem velja að bruna um götur borgarinnar á Hopp-deilibílum eru fyrirmyndarökumenn, skila bílunum hreinum, virða reglur og eru með allt sitt á hreinu. En svona er bara litróf mannlífsins. Fólk lendir í óhöppum og ég hef ekkert meira að segja um þetta sérstaka mál.“ Ekki hægt að koma í veg fyrir allt Kristín bætir við að hvorki Hopp né lögreglan geti komið í veg fyrir að einstaka óæskileg atvik komi upp á. Fram hefur komið að deilibíllinn hafi verið nokkuð tjónaður að eftirför lokinni en á för sinni keyrði ökumaðurinn utan í minnst fjórar bifreiðar, þar af tvo lögreglubíla. Hún segir að málið verði skoðað í samráði við tryggingafélag fyrirtækisins að lokinni meðferð lögreglu. „Almennt eru þessir hundrað deilubílar sem þjóna borgarbúum á hverjum degi í góðu ástandi og ökumennirnir líka. Þeim fjölgar ört dag frá degi og þá auðvitað eru einstaka tilvik sem koma upp sem eru óhöpp hjá fólki og lögreglan og tryggingafélagið eiga við það.“ Kristín bendir á að mál komi upp hjá öllum bílaleigum en hún telur að bifreiðar Hopp lendi frekar í fréttum þar sem þær séu merktar fyrirtækinu með einkar áberandi hætti. Geta ökumenn átt von á því að vera bannaðir frá ykkar þjónustu ef upp kemst um brot? „Já, hiklaust. Ef þú brýtur reglurnar okkar eða skilmálana þá leyfum við þér ekki að keyra aftur.“ Hún ítrekar að hún geti ekki tjáð sig um þetta einstaka mál á þessu stigi þar sem Hopp þurfi að fá skýrslu frá lögreglu áður en fyrirtækið tekur næstu skref.
Lögreglumál Bílaleigur Reykjavík Tengdar fréttir Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti Hopp-deilibíl eftirför frá Lágmúla að Víðidal í dag. Ökumaður Hopp-bílsins er talinn hafa verið undir áhrifum en hann ók utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvö lögreglubíla á för sinni. Hann er sagður hafa ekið á allt að 140 kílómetra hraða. 6. september 2026 13:04 Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Æsileg atburðarás fór af stað í kjölfar innbrots í apótek í vikunni. Innbrotsþjófurinn flúði á bíl með lögregluna á hælunum og keyrði meðal annars yfir göngubrú. Lögreglufulltrúi segir eftirfarir erfið verkefni sem geti skapað mikla hættu. 3. júlí 2026 19:05 Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira
Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti Hopp-deilibíl eftirför frá Lágmúla að Víðidal í dag. Ökumaður Hopp-bílsins er talinn hafa verið undir áhrifum en hann ók utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvö lögreglubíla á för sinni. Hann er sagður hafa ekið á allt að 140 kílómetra hraða. 6. september 2026 13:04
Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Æsileg atburðarás fór af stað í kjölfar innbrots í apótek í vikunni. Innbrotsþjófurinn flúði á bíl með lögregluna á hælunum og keyrði meðal annars yfir göngubrú. Lögreglufulltrúi segir eftirfarir erfið verkefni sem geti skapað mikla hættu. 3. júlí 2026 19:05