„Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Sindri Sverrisson skrifar 29. ágúst 2026 23:00 Birkir Már Sævarsson var glaðbeittur í viðtali við Nablann í dag enda að fagna sæti í Bestu deildinni með Aftureldingu. Birkir Már Sævarsson fór yfir málin með Andra Má Eggertssyni, Nablanum, eftir að hafa átt sinn þátt í að koma Aftureldingu aftur upp í Bestu deildina í dag, á miðri bæjarhátíð Mosfellinga. Birkir ætlar að hvíla sig vel áður en hann tekur ákvörðun um næstu leiktíð. „
Þetta var geggjað. Ógeðslega gaman,“ sagði Birkir glaðbeittur eftir 2-0 sigurinn gegn Vestra í dag sem tryggði Mosfellingum sæti í Bestu deildinni. Hann var þá í beinni útsendingu í Doc Zone á Sýn Sport en viðtalið má sjá hér að neðan. Klippa: Birkir í viðtali við Nablann eftir sæti í Bestu deildinni Mosfellingar féllu úr Bestu deildinni síðasta haust, eftir sína fyrstu leiktíð þar frá upphafi, en eru nú búnir að tryggja sér efsta sæti Lengjudeildarinnar þrátt fyrir að enn sé ein umferð eftir. Það var nokkuð óvænt þegar Birkir, sem er 41 árs, ákvað að taka skóna úr hillunni og spila með Aftureldingu en þar fékk hann tækifæri til að spila með bróður sínum, Aroni Elí, og niðurstaðan varð draumatímabil sem enn er ekki lokið. Mosfellingar mæta nefnilega Breiðabliki í bikarúrslitaleik föstudagskvöldið 11. september. Eftir bikarúrslitaleikinn ætlar Birkir að skoða sín mál en þessi 103 landsleikja bakvörður hefur sýnt í sumar að hann ætti fullt erindi í Bestu deildina. „Ég ætla ekki að ákveða neitt núna. Ég ætla að taka frí, langt fram á vetur. Svo ætla ég bara að láta eitthvað koma til mín. Örugglega hætti ég bara, eða fer í KH eða eitthvað, en ég er ekki búinn að ákveða neitt og ætla ekki að gera það fyrr en bara á næsta ári,“ sagði Birkir við Nablann. Spurður frekar út í framtíðina ítrekaði Birkir fyrra svar: „Ég nenni ekki að ákveða neitt. Ég ætla bara að njóta þess að fagna með þessum frábæru stuðningsmönnum og svo bara hvíla mig.“
Afturelding Besta deild karla Lengjudeild karla Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira