Leik lokið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Árni Jóhannsson skrifar 10. ágúst 2026 21:05 KR-ingar fagna einu af þremur mörkum sinum í fyrri hálfleiknum. Vísir/Anton KR-ingar unnu 5-2 sigur á Fram í Úlfarsárdalnum í sjö marka lokaleik átjándu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld og náðu með því öðru sætinu af Framliðinu.KR skoraði tvö mörk á fyrstu sex mínútum leiksins og komst síðan í 3-0 en Fram minnkaði muninn á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks og kom muninum niður í eitt mark í þeim síðari.KR-ingar gerðu þá út um leikinn með tveimur mörkum á stuttum tíma og eru nú bara sex stigum á eftir toppliði Víkings sem hefur verið að tapa stigum í síðustu leikjum.Stuðningsmenn KR sungu líka "Víkingar stressaðir" undir lok leiksins þegar KR-ingar voru búnir að gera út um leikinn.Eiður Gauti Sæbjörnsson skoraði tvö mörk fyrir KR en hin skoruðu Arnór Ingvi Traustason, Ástbjörn Þórðarson og Galdur Guðmundsson. Kennie Knak Chopart skoraði bæði mörk Fram.Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Besta deild karla Íslenski boltinn KR Fram