Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Magnús Jochum Pálsson skrifar 7. ágúst 2026 13:52 Tom Holland og Zendaya giftu sig fyrr á árinu og héldu svo annað brúðkaup núna í vikunni. EPA Tom Holland og Zendaya giftu sig fyrr á árinu í lágstemmdri leynilegri athöfn og héldu svo annað brúðkaup með stórri veislu á sveitasetrinu Beaverbrook í Surrey í vikunni. Um 250 gestir voru í veislunni sem kostaði víst hálfa milljón sterlingspunda (jafnvirði um 83 milljóna króna) og var strangt símabann á staðnum.
Holland og Zendaya eru án efa stærsta stjörnupar heims og eru bæði nýbúin að leika í tveimur stærstu kvikmyndum ársins, The Odyssey og Spider-Man: Brand New Day. Þau hafa þurft að fylgja báðum myndum eftir með löngum fjölmiðlatúrum og því lítill tími gefist í annað. Sjá einnig: Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Hjónin giftu sig í lítilli athöfn fyrr á árinu sem Holland staðfesti í viðtali við Esquire í júní. Parið náði svo loksins að fagna brúðkaupinu í Surrey í suðausturhluta Englands með þriggja daga veislu sem hófst á mánudaginn. Veislan fór fram með leynd en núna eru upplýsingar um hana loksins farnar að kvisast út. Sveitasetrið Beaverbrook er fimm stjörnu lúxushótel með útsýni yfir Surrey-hlíðar og er stutt frá heimili hjónanna í Richmond. Samkvæmt heimildum The Sun lögðu hjónin mikið upp úr því að koma í veg fyrir að upplýsingar um brúðkaupið eða myndir úr því lækju í fjölmiðla þannig að hvorki gestir né starfsfólk fengu að vera með síma. Litlar upplýsingar liggja þó fyrir um brúðkaupið nema hvað í því var „náttúrulegt“ þema og um 250 gestir, þar á meðal fjölskylda og vinir en einnig þekkt nöfn á borð við Timothee Chalamet, Kylie Jenner og Robert Downey Jr. Sjá einnig: Tom Holland og Zendaya kaupa sitt fyrsta heimili saman Viðburðurinn hófst með æfingakvöldverði á mánudagskvöld. Sjálft brúðkaupið fór fram við sólsetur á þriðjudagskvöldið með brúðkaupsveislu í kjölfarið þar sem bæði Zendaya og Holland héldu ræður. Á miðvikudagsmorgun var gestum síðan boðið upp á veglegan kampavínsmorgunverð. Þrátt fyrir að vera bæði heimsfræg hafa Holland og Zendaya haldið einkalífi sínu mestmegnis fjarri sviðsljósinu. Þau hafa þekkst síðan þau byrjuðu að leika saman í kvikmyndum um Köngulóarmanninn árið 2016, byrjuðu saman árið 2021 og trúlofuðu sig í lok árs 2024.
Bíó og sjónvarp Ástin og lífið England Hollywood Tengdar fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Köngulóarmaðurinn tekst á við einmanaleika, hormónaójafnvægi og dularfullt illmenni í nýjustu kvikmyndinni um kappann. Framan af er um að ræða skemmtilega ofurhetjumynd með sjarmerandi persónum, góðum hasar og spennandi framvindu. Illa tekst þó að hnýta lausa enda saman, hetjan drukknar í flóði hliðarpersóna og ódýr væmni setur strik í reikninginn. 6. ágúst 2026 07:01 Stórbrotinn stíll Zendayu Það er of vægt til orða tekið að segja að leikkonan Zendaya beri af í klæðaburði. Engin önnur stjarna kemst með tærnar þar sem hún hefur hælana og undanfarið hefur henni tekist að toppa sjálfa sig algjörlega. 7. júlí 2026 14:00 Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira
Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Köngulóarmaðurinn tekst á við einmanaleika, hormónaójafnvægi og dularfullt illmenni í nýjustu kvikmyndinni um kappann. Framan af er um að ræða skemmtilega ofurhetjumynd með sjarmerandi persónum, góðum hasar og spennandi framvindu. Illa tekst þó að hnýta lausa enda saman, hetjan drukknar í flóði hliðarpersóna og ódýr væmni setur strik í reikninginn. 6. ágúst 2026 07:01
Stórbrotinn stíll Zendayu Það er of vægt til orða tekið að segja að leikkonan Zendaya beri af í klæðaburði. Engin önnur stjarna kemst með tærnar þar sem hún hefur hælana og undanfarið hefur henni tekist að toppa sjálfa sig algjörlega. 7. júlí 2026 14:00