Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. ágúst 2026 09:59 Tom Holland í ofurhetjugallanum við tökur á nýjustu myndinni um Köngulóarmanninn. Getty Nýjasta kvikmyndin um Köngulóarmanninn sló um helgina sögulegt met sem stórmyndin Avengers: Endgame átti. Köngulóarmaðurinn rakaði inn 360 milljónum dala í Bandaríkjunum sem er stærsta opnunarhelgi sögunnar þar í landi. Á heimsvísu halaði myndin inn rúmum 930 milljónum dala og stefnir í að verða með best sóttu kvikmyndum sögunnar.
Um er að ræða Spider-Man: Brand New Day, fjórðu kvikmyndina með Tom Holland í aðalhlutverki vinalegu ofurhetjunnar. Ekki nóg með að vera vel sótt heldur hefur kvikmyndin einnig fengið fína dóma hjá gagnrýnendum með um 89% prósent ferskleika hjá Rotten Tomatoes, meðaleinkunnina 6,6 á síðunni Metacritic sem safnar saman dómum gagnrýnenda og 8,2 á vinsælu bíósíðunni IMDB. Brand New Day var sýnd í 2.487 bíósölum í Norður-Ameríku um helgina og seldust bíómiðar þar fyrir 360 milljónir dala. Þar með bætti kvikmyndin fyrra metið, sem Avengers: Endgame átti með 357,1 milljón dala. Endgame heldur þó enn metinu fyrir stærstu opnunarhelgi á heimsvísu með 1,2 milljarða dala í miðasölu. Miðasalan fór langt fram úr bjartsýnustu spám og hefur myndin margborgað sig miðað við kostnað. Meint þreyta áhorfenda með ofurhetjumyndir virðist ekkert bíta á Köngulóarmanninn sem virðist alltaf vinsæll hjá áhorfendum. Tom Holland er sömuleiðis ótvíræður miðasölukóngur ársins í ár. Ekki nóg með að halda áfram að gera það gott sem Köngulóarmaðurinn heldur lék hann Telemakkus í The Odyssey sem stefnir hraðbyri á milljarð í miðasölu. Hann er þó ekki einn um að leika í báðum myndum, því Zendaya og Jon Bernthal gera það einnig. Spider-Man: Brand New Day segir frá glímu Peters Parker við einmanaleika, vinamissi og nýjan dularfullan óvin. Leikstjóri myndarinnar er Daniel Destin Cretton sem hefur áður leikstýrt Marvel-myndinni Shang-Chi (2021) og þáttunum Wonder Man (2026). Leikhópurinn er stjörnum prýddur með Holland, Zendayu, Bernthal, Jacob Batalon, Marc Ruffalo, Sadie Sink og Florence Pugh í stórum hlutverkum.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Tengdar fréttir Haaland hunsaði Holland Hollywood-stjarnan Tom Holland játaði að það væri auðmýkjandi reynsla að fótboltastjarnan Erling Haaland skyldi hunsa skilaboð hans. Holland sá Haaland á formúlunni í júní og bauð Norðmanninum út að borða en fékk ekkert svar. Haaland viðurkenndi að hafa hunsað skilaboðin því hann vissi ekkert hver Holland væri. 15. júlí 2026 11:29 Stórbrotinn stíll Zendayu Það er of vægt til orða tekið að segja að leikkonan Zendaya beri af í klæðaburði. Engin önnur stjarna kemst með tærnar þar sem hún hefur hælana og undanfarið hefur henni tekist að toppa sjálfa sig algjörlega. 7. júlí 2026 14:00 Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Fjórða myndin um Köngulóarmanninn með Tom Holland í aðalhlutverki er farin í framleiðslu og er leikhópurinn stjörnum prýddur. Svo virðist sem Hulk, Punisher og Scorpion muni allir koma við sögu. 2. ágúst 2025 11:41 Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Fleiri fréttir La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira
Haaland hunsaði Holland Hollywood-stjarnan Tom Holland játaði að það væri auðmýkjandi reynsla að fótboltastjarnan Erling Haaland skyldi hunsa skilaboð hans. Holland sá Haaland á formúlunni í júní og bauð Norðmanninum út að borða en fékk ekkert svar. Haaland viðurkenndi að hafa hunsað skilaboðin því hann vissi ekkert hver Holland væri. 15. júlí 2026 11:29
Stórbrotinn stíll Zendayu Það er of vægt til orða tekið að segja að leikkonan Zendaya beri af í klæðaburði. Engin önnur stjarna kemst með tærnar þar sem hún hefur hælana og undanfarið hefur henni tekist að toppa sjálfa sig algjörlega. 7. júlí 2026 14:00
Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Fjórða myndin um Köngulóarmanninn með Tom Holland í aðalhlutverki er farin í framleiðslu og er leikhópurinn stjörnum prýddur. Svo virðist sem Hulk, Punisher og Scorpion muni allir koma við sögu. 2. ágúst 2025 11:41