„Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 27. júlí 2026 20:41 Ólafur Ingi Skúlason fagnar því að fá þrjú stig. vísir/Diego Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, sagði 1-0 sigurinn á ÍBV í 16. umferð Bestu deildar karla mögulega falla undir skilgreininguna á iðnaðarsigri. Honum fannst leikurinn jafn og viðurkenndi að frammistaða Blika hefði ekki verið sannfærandi allan tímann. „
Mér fannst við ekki góðir í byrjun leiks. Við vorum passífir, bæði í pressunni og á boltanum. Á köflum vorum við allt í lagi en það vantaði aðeins upp á síðasta hlutann og við kláruðum sóknirnar ekki nógu vel,“ sagði Ólafur Ingi. Allt annað var þó uppi á teningnum í byrjun síðari hálfleiks. Blikar tóku þá völdin og komust yfir þegar Ágúst Orri Þorsteinsson skoraði eina mark leiksins. „Mér fannst við vera mjög góðir fram að markinu og halda áfram með gott orkustig í nokkrar mínútur eftir það. Síðan urðum við aftur aðeins passífir og hættum að gera það sem hafði verið að virka. Við buðum þeim aftur inn í leikinn.“ Ólafur Ingi sagði það andlega geta reynst erfitt að verja eins marks forystu þegar líður á leikinn. „Þegar þú ert 1-0 yfir ferðu að líta á klukkuna. Menn þora kannski síður að spila boltanum fram og fara frekar til baka. Það hleypti þeim aftur inn í leikinn en við náðum að halda út.“ Jónatan Guðni Arnarsson var ógnandi í leiknum en fór af velli eftir um 70 mínútur. Ólafur Ingi sagði skiptinguna ekki hafa verið hugsaða til þess að loka leiknum. „Alls ekki. Jónatan hefur verið mikið meiddur, bæði í vetur og í sumar, og við erum að byggja hann upp. Sjötíu mínútur voru einfaldlega nóg fyrir hann í dag.“ Hann fagnaði því jafnframt að leikmenn væru að snúa aftur úr meiðslum og að loksins væri hægt að nýta leikmannahópinn betur. „Við erum farnir að fá menn til baka og getum farið að nýta hópinn af einhverju viti. Það var því alls ekki pælingin að þétta raðirnar.“ Breiðablik mætir Þór 4. ágúst og leikmenn liðsins fá tvo frídaga í kringum verslunarmannahelgina. Ólafur Ingi sagðist ekki hafa áhyggjur af því hvernig hinn ungi leikmannahópur myndi haga sér. „Við erum með okkar reglur og leikmennirnir vita hvað þær fela í sér. Þetta eru fagmenn. Þó að við séum með marga unga leikmenn þá eru þetta strákar sem lifa fyrir boltann og ég hef engar áhyggjur af þeim.“
Breiðablik Besta deild karla ÍBV Íslenski boltinn Mest lesið Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Enski boltinn Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Sonurinn skaut móður sína Sport Kallaður fyrir þingnefnd vegna tengslanna við Trump Fótbolti „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Hræðist ekki sorgarsögu Íslendinga í Króatíu: „Við þurfum bara að skrifa betri sögu“ Fótbolti Finnst illa að Argentínu vegið: „Enginn fótur fyrir þessu hatri“ Fótbolti Mbappé sár eftir HM Fótbolti Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Zidane nýr landsliðsþjálfari Frakklands Fótbolti Fleiri fréttir „Frábær leikmaður og skemmtilegur karakter sem við munum sakna“ Sjáðu Ágúst Orra tryggja Breiðabliki sigur og viðhalda ótrúlegri tölfræði Freyja seld til Svíþjóðar Valdi tíu verstu augnablik Stjörnumanna á Skaganum: „Eins og þeir væru drukknir“ Dagskráin í dag: Bikarúrslitaliðin í eldlínunni „Góðir tímar framundan“ „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ „Mjög ánægður með margt í leiknum en óánægður með jafntefli“ Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Fyrirliði Njarðvíkur til Vals Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Aðstoðarþjálfari Jökuls í Vesturbæinn „Við eigum harma að hefna“ Sjáðu mörkin þegar ÍA kjöldró Stjörnuna Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Uppgjörið: FH-Fram 0-0 | Mörg mörk síðast en ekkert í kvöld Kláraði Harvard og samdi við Blika Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ Sjá meira