Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Sindri Sverrisson skrifar 12. júlí 2026 21:34 Menn leita enn svara við því hvernig nákvæmlega það kom til að Folarin Balogun fékk að spila fyrir Bandaríkin eftir rauða spjaldið sem hann fékk á HM. Getty/Jamie Squire Breska blaðið The Times fullyrðir að af 18 meðlimum aganefndar FIFA hafi aðeins formaðurinn komið að ákvörðuninni um að gera Folarin Balogun kleift að spila áfram á HM, þrátt fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í 32-liða úrslitunum.
Engin fordæmi eru fyrir því að leikbanni sé í raun aflétt með þeim hætti sem gert var á HM, þegar að leikbann Balogun var gert skilorðsbundið eftir rauða spjaldið sem hann fékk gegn Bosníu í lokaumferð riðlakeppninnar á HM. There are 18 members of FIFA's disciplinary committee but the unprecedented decision to lift Balogun's automatic ban was taken by just one person - the chairman Mohammad Al Kamali of UAE. No one else was consulted. Full story: https://t.co/DbqEmcPlOT— Martyn Ziegler (@martynziegler) July 12, 2026 Ákvörðun aganefndar FIFA, sem kom eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði rætt við Gianni Infantino, forseta FIFA, um málið, gerði Balogun kleift að spila gegn Belgíu í 16-liða úrslitunum. Það dugði þó Bandaríkjamönnum skammt og stigu Belgar Trump-dans þegar þeir fögnuðu 4-1 sigri sínum í leiknum, eftir að belgíska knattspyrnusambandið, UEFA og fleiri höfðu gagnrýnt niðurstöðu FIFA harðlega. FIFA hefur sagt að ákvörðunin um bann Baloguns sé í höndum aganefndar sambandsins, sem sé óháð, en formaður hennar er Mohammad Al Kamali frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Samkvæmt The Times var hann sá eini sem kom að því að taka ákvörðun um leikbann Baloguns – ákvörðun sem lögfróðir menn á borð við fyrrverandi lögfræðing KSÍ hafa fullyrt að stangist á við lög FIFA. Fleiri fjölmiðlar hafa leitað svara við því hvernig ákvörðunin um að aflétta banni Baloguns var tekin. Ritstjóri íþróttafrétta hjá BBC, Dan Roan, lagði spurningar fyrir Mohammad al Kamali þegar hann mætti á leik Englands við Noreg í gærkvöld en formaðurinn vildi engu svara. Trying to get some answers from the chair of FIFA disciplinary Cttee Mohammad Alkamali about the decision-making process which led to US striker Folarin Balogun avoiding a ban after being sent off, following an intervention from US President Donald Trump https://t.co/rTpCJqzLyo pic.twitter.com/QDf0mObeJT— Dan Roan (@danroan) July 12, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Leik lokið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Sjá meira