Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Kjartan Kjartansson skrifar 18. júní 2026 08:09 Masoud Pezeshkian, forseti Írans, heldur á samkomulaginu við Bandaríkin. Á því sést undirskrift hans (t.h.) og Donalds Trump (t.v.). Vísir/EPA Samkomulag sem Bandaríkjamenn og Íranir skrifuðu undir í gærkvöldi felur í sér vopnahlé, opnun Hormússund og að Íranir komi sér ekki upp kjarnavopnum. Bandaríkjamenn skuldbunda sig einnig til þess að aflétta öllum viðskiptaþvingunum á Íran, skipta sér ekki af innri málefnum landsins og að skila frystum eignum Írana.
Skjalið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti og Masoud Pezeshkian, forseta Írans, hafa nú báðir skrifað undir er í fjórtán líðum. Samningaaðilar gefa sér sextíu daga til þess að komast að endanlegu friðarsamkomulagi. Mögulegt er að framlengja þann frest. Stóru atriðin af hálfu Bandaríkjamanna eru að Hormússund verður opnað fyrir skipaumferð strax og án þess að Íranir heimtuðu gjald eða toll af henni. Fyrirvari er um að fjarlægja þurfi tundurdufl sem Íranir komu fyrir í sundinu. Þá lofa Íranir að koma sér hvorki upp kjarnavopnum né kaupa þau. Óræðara er hvað verður um það auðgaða úran sem Íranir eiga nú þegar. Semja á nánar um það á næstu tveimur mánuðum. Í millitíðinni á óbreytt ástand að ríkja um kjarnorkuáætlun Írans. Það er sagt þýða að Bandaríkjastjórn leggi ekki á neinar nýjar þvingunaraðgerðir vegna hennar og leyfi Írönum að flytja fjármuni, olíu og vörur óhindrað. Báðir aðilar lofa að skipta sér ekki af „innri málum“ hvor annars. Breska ríkisútvarpið segir að andófsmenn í Íran eigi ekki eftir að taka því fagnandi, ekki síst því Trump boðaði að „hjápi væri á leiðinni“ í fjöldamótmælum sem írönsk stjórnvöld börðu niður af hörku í vetur. Fá frysta fjármuni og frelsi frá viðskiptaþvingunum Íranir virðast einnig fá ýmislegt fyrir sinn snúð. Lýsa á yfir varanlegu vopnahléi á „öllum vígstöðvum“, þar á meðal í Líbanon þar sem Ísraelar hafa herjað á Hezbollah, bandamenn Írana. Ekki liggur fyrir hvernig Bandaríkjastjórn ætlar að fá Ísraela til þess að una við það en harðlínumenn í ríkisstjórn þeirra hafa þegar fundið samkomulaginu flest til foráttu og lýst sig óbundna af því. Bandaríkjastjórn ætlar að hætta herkví sinni um íranskar hafnir og draga herlið sitt til baka. Þá ætlar hún að fella niður allar efnahagsþvinganir gegn Íran, þar á meðal þær sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt. Það er þó háð því að Íranir standi við sínar skuldbindingar um kjarnorkuáætlun sína. Einn helsti ásteytingarsteinninn í viðræðunum var krafa Írana um að fá aðgang að frystum fjármunum. Samkomulagið felur í sér að þeir fái féð til baka en semja á um hvernig það gerist á næstu tveimur mánuðum. Þá á að stofna 300 milljarða dollara enduruppbyggingarsjóð fyrir Íran eftir árásirnar. Bandaríkjamenn eru þó ekki sagðir ætla að leggja sjóðnum til neitt fé. Framlag þeirra er sagt felast í að leggja blessun sína yfir að erlend ríki fjárfesti í Íran.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Bandaríkin Ísrael Hernaður Bensín og olía Mest lesið Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Sjá meira