Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met Andri Broddason skrifar 17. júní 2026 16:33 Leikmenn Portúgal geta verið svekktir eftir niðurstöðu leiksins í dag. Julian Finney - FIFA/FIFA via Getty Images Portúgal mætir Austur-Kongó í fyrstu umferð riðlakeppni HM karla í fótbolta. Þetta er sjötta heimsmeistaramót fyrirliða Portúgals, Cristiano Ronaldo. Leikmenn Kongó fengu skell í byrjun þar sem Portúgal komst yfir eftir aðeins sex mínútna leik þegar Joao Neves skoraði með skalla. Portúgal hélt vel í boltann en náði ekki að skapa sér mikið af færum. Lið Kongó var mun hættulegra og bjó sér til hættulegri færi í þau fáu skipti sem liðið fékk að spreyta sig með boltann. Undir lok fyrri hálfleiks jafnar Yoane Wissa metin fyrir Kongó eftir slakan varnarleik Portúgal. Kongó sendir háan bolta inn í teiginn þar sem Wissa er nánast ódekkaður og stekkur manna hæst. Hann stangar boltann fast í netið og er staðan jöfn eftir fyrri hálfleik 1-1. Seinni hálfleikur var svipaður og sá fyrri þar sem Portúgal hélt vel í boltann en leikmennirnir voru ekki mikið að ógna marki Kongó. Stórstjörnur Portúgal náðu ekki að sýna hvað í þeim bjó. Undir lok leiksins hefði Portúgal getað misst leikmann út af eftir að Tomas Araujo braut harkalega á Wissa þegar hann var að sleppa í gegnum vörn Portúgal. Araujo fékk aðeins gult spjald fyrir brotið. Niðurstaðan er því dapurt jafntefli þar sem það virtist eins og Portúgal vildi ekki vinna leikinn. Engar áhættur voru teknar og Kongó var eina liðið sem gerði tilraun til að sækja þrátt fyrir að vera lítið með boltann. HM 2026 í fótbolta