Upp­gjör: Marka­laust jafn­tefli þrátt fyrir fjörugan leik

Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar
Þróttur gerði markalaust jafntefli við ÍBV
Þróttur gerði markalaust jafntefli við ÍBV Vísir/Diego

Þróttur og ÍBV skildu jöfn, 0-0, þegar liðin mættust á AVIS-vellinum í Laugardal í kvöld. Þrátt fyrir að mörkin létu á sér standa var leikurinn opinn og skemmtilegur á köflum þar sem bæði lið fengu góð tækifæri til að tryggja sér sigurinn. Úrslitin þýða að Þróttur fer upp í 13 stig en fellur niður í fimmta sæti deildarinnar, á meðan ÍBV dettur niður í fjórða sæti eftir að Stjarnan fór upp í þriðja sæti með sigri á Breiðablik.

Fyrri hálfleikur var opinn og jafn og bæði lið fengu góð færi til að brjóta ísinn. Fyrsta stóra færið kom á 19. mínútu þegar Allison Grace Lowrey komst í gott færi inni í teignum. Mollee Swift var hins vegar vel á verði í marki Þróttar og sá til þess að staðan héldist markalaus.

Þróttarar svöruðu fyrir sig og voru nálægt því að fara með forystu inn í hálfleikinn. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks kom Björg Gunnlaugsdóttir með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn sem rataði á kollinn á Unni Dóru Bergsdóttir. Skalli hennar stefndi í netið en Guðný Geirsdóttir sýndi snilldartakta í marki ÍBV og varði meistaralega. Staðan var því markalaus þegar flautað var til hálfleiks.

ÍBV kom af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn og náði um tíma góðum tökum á leiknum. Gestirnir sköpuðu sér nokkur álitleg færi og sóttu meira að marki Þróttar, en tókst ekki að koma boltanum fram hjá Swift í marki Þróttar.

Minna var um opin marktækifæri í seinni hálfleik og hvoru liðinu tókst að skora. Þróttarar fengu þó dauðafæri í lok leiks til að stela stigunum þremur. Þórdís Nanna Ágústsdóttir renndi þá góðri sendingu inn fyrir vörn ÍBV. Brynja Rán Knudsen slapp þá ein í gegn og virtist ætla að tryggja heimakonum sigurinn en enn á ný gerði Guðný Geirsdóttir vel í markinu og varði vel frá henni. Það reyndist síðasta stóra færi leiksins og liðin urðu að lokum að sætta sig við markalaust jafntefli.

Atvik leiksins

Dauðafærið sem Unnur Dóra Bergsdóttir fékk í uppbótartíma fyrri hálfleiks og færið sem Brynja Rán Knudsen fékk í lok venjulegs leiktíma reyndust stærstu marktækifæri leiksins. Í bæði skiptin stóð Guðný Geirsdóttir vaktina vel í marki ÍBV og átti stóran þátt í því að markalaust varð á AVIS-vellinum.

Stjörnur og skúrkar

Markverðirnir Mollee Swift og Guðný Geirsdóttir voru meðal bestu leikmanna vallarins í kvöld. Markverðirnir stigu báðar upp þegar á þurfti að halda og sáu þær til þess að hvorugu liði tækist að skora.

Dómarinn

Pétur Guðmundsson dómari var með góð tök á leiknum. Ekki komu upp nein stór vafaatriði og dómgæslan var heilt yfir mjög góð.

Stemning og umgjörð

Frábærar aðstæður í Laugardalnum, glampandi sól og veðrið lék við leikmenn og áhorfendur. Það var ágæt mæting á völlinn og þeir sem voru í stúkunni létu heyra vel í sér allan leikinn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira