Olise með þrennu en Mbappé náði ekki að jafna markametið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2026 21:08 Michael Olise fagnar fyrsta marki sínu sem kom eftir skot Ousmane Dembele sem er með honum. Getty/Franco Arland Michael Olise var stjarna kvöldsins þegar Frakkar unnu 3-1 sigur á Norður-Írlandi í síðasta leik sínum fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta.
Olise skoraði öll þrjú mörk franska liðsins í leiknum. Í fyrri tveimur mörkunum var hann réttur maður á réttum stað þegar boltinn féll fyrir hann í teignum en þriðja markið skoraði hann með stórglæsilegu skoti fyrir utan teig. Kylian Mbappé hefði jafnað markamet franska landsliðsins með marki en honum tókst ekki að skora þrátt fyrir að reyna mikið allan leikinn. Mbappé reyndi sex skot en ekkert þeirra rataði í markið. Mbappé er því enn með 56 mörk eða einu marki minna en methafinn Olivier Giroud. Olise kom Frökkum 1-0 tveimur mínútum fyrir hálfleik þegar hann fylgdi eftir skoti Ousmane Dembele í varnarmann og skoraði síðan aftur snemma í seinni hálfleiknum. Norður-Írar gáfust ekki upp og Patrick Kelly minnkaði muninn á 64. mínútu eftir stoðsendingu frá Shea Charles. Olise átti lokaorðið ellefu mínútum síðar þegar hann fékk boltann úti á kanti, lék upp að teignum og skoraði með frábæru skoti í fjærhornið. Olise næstum því tvöfaldaði markafjölda sinn fyrir franska landsliðið því hann hafði fyrir leikinn skoraði fjögur mörk í sextán landsleikjum. Frakkar fara því inn á HM með sigur en þeir töpuðu óvænt fyrir Fílabeinsströndinni í síðustu viku.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Fylkir – Afturelding | Einum sigri frá bikarúrslitaleik FH – Stjarnan | Tvö heitustu lið deildarinnar mætast Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Stoltur af argentíska liðinu Flækingur fótboltans enn á flakki á milli félaga Gleði Spánverja mældist á jarðskjálftamælum Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu „Þetta lítur bara illa út“ Svaf ekki fyrir fagnaðarlátum á Spáni Segir búið að ákveða að það verði 64 þjóðir á næsta HM Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Sjá meira