Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. júní 2026 20:33 Pútín hefur ítrekað neitað því að funda með Selenskí. Getty Vladimir Pútín Rússlandsforseti segist ekki sjá tilgang í því að funda með Vólódimír Selenskí Úkraínuforseta. Hann sagði opið bréf frá Selenskí þess efnis „dónalegt“ og ítrekaði að Rússar héldu fast við að ná fram öllum sínum markmiðum, það er að segja innlimun Donbas.
Ummælin lét Pútín falla á efnahagsráðstefnu í Sankti Pétursborg sem nú stendur yfir. Selenskí hafði lagt til að forsetarnir myndu funda í þriðja ríki á borð við Sviss eða Tyrkland. Frysta ætti víglínuna og koma á vopnahléi á meðan viðræðum stæði. Þá var vikið að erfiðleikum Rússa á vígvellinum og eldsneytisskort á Krímskaga vegna árása Úkraínumanna. Mögulega er það sá hluti bréfsins sem Pútín þótti „dónalegur“. Rússlandsforseti fullyrti á ráðstefnunni að Rússar réðu yfir öllu Luhansk-héraði, sem Úkraínumenn segja ósatt, og yfir 85 prósentum af Donetsk. Þá ítrekaði forsetinn þá kröfu að Úkraínumenn gæfu eftir Kherson og Zaporizhzhia. Pútín sagði bréf Selenskís ekki miða að því að koma á persónulegum fundi, þvert á móti væri því ætlað að koma í veg fyrir að slíkur fundur ætti sér stað. Þá hvatti hann rússneska hermenn á vígvellinum til að halda áfram baráttu sinni. Selenskí hefur svarað og segir viðbrögð Pútín til marks um áhugaleysi hans á því að binda enda á átökin. Rússar séu enn og aftur að velja stríð. „Ég tel þessi viðbrögð munu valda mörgum í heiminum vonbrigðum.“
Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira