Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 27. maí 2026 19:01 Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, Ari Edwald, oddviti Miðflokksins og Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins. Vísir „Okkur langar að koma Reykjavík í fremstu röð í skólamálum“, segir verðandi forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar. Oddviti Framsóknar ætlar við stjórn borgarinnar að leggja áherslu vilja almennings, Ari Edwald íhugar tilboð sem Líf Magneudóttir vildi fá.
Fram kom á blaðamannafundi nýs meirihluta í Viðey í morgun að nú eigi að láta verkin tala. Til að mynda á að lækka fasteignaskatta, auglýsa á eftir vinnustöðum um rekstur leikskóla, stytta á gjaldskyldutíma á bílastæðum, lengja opnunartíma sundlauga, breyta fyrirliggjandi skipulagi í Keldnalandi og Úlfarsárdal og ráðast í hagræðingu í stjórnkerfinu. Ítarlegur verkefnalisti verður kynntur 2. júní á fyrsta borgarstjórnarfundi meirihlutans og verður hægt að nálgast hann á vefsíðunni verkefnalisti.is. Áhersla á sátt og að láta verkin tala Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins er afar sáttur við niðurstöðuna en hann var eini fulltrúi flokksins sem náði kjöri í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum. Hann verður formaður borgarráðs og gegnir því embætti í eitt ár og skiptir þá við Björgu Magnúsdóttur sem verður forseti borgarstjórnar frá og með 2. júní. „Það þarf að vinna málin í sátt. Þetta er spurning um áherslur, þ.e. að hætta því sem almenningur hefur ekki áhuga á og gera það sem fólk vill. Nú á að leggja áherslu á leik- og grunnskólamál þar sem árangur og vellíðan barna er í forgrunni. Samgöngumál og horfast í augu við að þar þarf að snúa kúrsinum við,“ segir Einar. Viðreisn fékk tvo borgarfulltrúa í sveitarstjórnarkosningunum. Björg Magnúsdóttir oddviti segir mikilvægt að ráðast í verkefnin sem fyrst. „Okkur langar að koma Reykjavík í fremstu röð í skólamálum. Við ætlum að auka traust og láta verkin tala,“ segir Björg. Ari svekktur fyrir hönd borgarbúa Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri sagði í samtali við fréttastofu í morgun að það hafi ekki verið fyrr en á mánudaginn sem meirihlutaviðræður hófust fyrir alvöru. Hún hafi kannað alla kosti líka að mynda fjögurra flokka meirihluta, þá líka með Miðflokki. Björg segir að það hefði aldrei komið til greina. „Það var of langt milli Miðflokks og Viðreisnar og við gáfum fyrirheit um að við myndum ekki mynda meirihluta með flokknum fyrir kosningar og stóðum við það,“ segir Björg. Borgarbúar séu svekktir en ekki Ari Ari Edwald oddviti Miðflokksins segir að það hafi runnið upp fyrir sér um helgina að hann væri ekki inni í myndinni. Flokkurinn fékk þrjá borgarfulltrúa kjörna í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum og margfaldaði fylgi sitt. „Mér fannst blasa við þegar kosningaúrslitin lágu fyrir að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur myndu vinna saman því þeir eru sigurvegarar kosninganna,“ segir hann. Aðspurður um hvort hann sé svekktur með niðurstöðu dagsins svarar hann: „Ég er ekkert svekktur persónulega. Mér hefur þótt gaman að taka þátt í þessu. Við erum komin til að láta muna um okkur. En ég er svekktur fyrir hönd borgarbúa.“ Hildur Björnsdóttir upplýsti á blaðamannafundinum í morgun að hún hefði ákveðið að bjóða Ara Edwald að taka að sér stjórnarformennsku í Orkuveitunni. Ari segist hafa frétt það stuttu fyrir fundinn. Hann íhugi tilboðið næstu daga. Ari Edwald sat á nýliðanámskeiði í ráðhúsinu í dag. Líf Magneudóttir borgarfulltrúi hefði viljað fá tilboðið sem hann fékk frá verðandi borgarstjóra. Vísir/Sigurjón „Þetta var góð tillaga hjá Hildi og ég þarf bara að íhuga hana,“ segir Ari. Líf ósátt Líf Magneudóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna og verðandi borgarfulltrúi Vinstrisins hefði viljað fá slíkt tilboð. „Mér finnst gengið fram hjá mér. Ég er reynslumesti borgarfulltrúinn. Ég gef setið sem formaður í stjórnum félaga í eigu Reykjavíkurborgar. Nú bíð ég bara eftir símtalinu,“ segir Líf. „Líst ekkert á það“ Alls taka um sextán nýir borgarfulltrúar við á næsta borgarstjórnarfundi þann 2. júní. Þeir voru á nýliðanámskeiði í ráðhúsinu í dag. Meðal þeirra var Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingar. Hann var spenntur fyrir störfunum fram undan. Pétri Marteinssyni hlakkar til að starfa í minnihluta.Vísir „Ég hlakka til að taka til starfa í minnihluta og veita þeim aðhald. Ég held að ekki muni veita af. En svo munum við líka styðja góð mál,“ segir Pétur. Honum líst illa á að taka svokallaðan Samgöngusáttmála upp eins og nefnt hefur verið af verðandi meirihluta. Þorvaldur Davíð Kristjánsson er verðandi varaborgarfulltrúi Viðreisnar. Hann hlakkar til starfsins framundan. Vísir/Sigurjón „Mér líst ekkert á það,“ segir Pétur. Þær Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir verðandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Magnea Gná Jóhannsdóttir verðandi varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir verðandi borgarfulltrúi Samfylkingar og Þorvaldur Daði Kristjánsson varaborgarfulltrúi Viðreisnar voru á námskeiðinu í ráðhúsinu í dag. Þau hlakka til að hefja störf. Þær Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir verðandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Magnea Gná Jóhannsdóttir verðandi varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir verðandi borgarfulltrúi Samfylkingar hlakka til að hefja störf í ráðhúsinu þann 2. júní.Vísir/Sigurjón „Það er bjart framundan. Við erum svo spennt. Við erum svo til í þetta, við erum svo spennt,“ sagði Ragnhildur þegar fréttastofa hitti á hana í dag og hin voru á sama máli.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Vinstrið Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Viðreisn Borgarlína Samfylkingin Borgarstjórn Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Það er jóker í spilinu Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Fleiri fréttir Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Sjá meira