Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Samúel Karl Ólason skrifar 18. maí 2026 20:53 Þrír liggja í valnum eftir árásina, auk árásarmannanna tveggja. Ungir menn, sautján og nítján ára gamlir, skutu einnig á garðyrkjumann nærri moskunni og virðist svo hafa svipt sig lífi. AP/Gregory Bull Tveir táningar hófu skothríð á fólk við mosku í San Diego í Bandaríkjunum nú undir kvöld. Báðir eru látnir en lögreglan er með mikinn viðbúnað á svæðinu og segist lögreglan hafa náð tökum á ástandinu. Að minnsta kosti þrír fullorðnir voru skotnir til bana fyrir utan moskuna.
Árásin var gerð við mosku sem heitir Islamic Center og ku vera sú stærsta í San Diego í Kaliforníu. Á lóðinni er einnig skóli þar sem boðið er upp á kennslu í arabísku og íslam. AP fréttaveitan segir að myndefni sem tekið var úr þyrlu sýni fjölda barna leidd út úr byggingunni af lögregluþjónum. Yfirmaður lögreglunnar í San Diego segir ógnina yfirstaðna. Báðir árásarmennirnir séu látnir. Lögreglustjórinn sagði að um klukkan 11:43 að staðartíma barst útkall um skotárás. Fyrstu lögregluþjónarnir hafi mætt á vettvang fjórum mínútum síðar. Þeir komu að þremur líkum fyrir utan moskuna. Á sama tíma og lögregluþjónana bar að garði barst útkall um aðra skotárás nærri moskunni. Þá hafði verið skotið á garðyrkjumann, sem varð þó ekki fyrir skoti. Skömmu síðar fundust táningarnir látnir í bíl þar nærri. BREAKING: At least 5 people killed, including 2 suspects and 3 adults, in shooting at the Islamic Center of San Diego in California, police say. pic.twitter.com/Lljtlw92VB— AZ Intel (@AZ_Intel_) May 18, 2026 Talið er að árásarmennirnir, sem voru tveir menn sautján og nítján ára gamlir, hafi svipt sig lífi en það hefur ekki verið staðfest. Samkvæmt heimildum NBC News heita árásarmennirnir Cain Clark (sá yngri) og Caleb Vazquez. Tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir enn. Í bíl mannanna fundust þó skrif sem sögð eru vera gegn íslamstrú. Annar mannanna ungu hafði tekið byssu af heimili foreldra sinna fyrr í dag. Þá segja heimildarmenn fjölmiðla vestanhafs að á þeir hafi skrifað orðin „hate speech“ eða „hatursorðræða“ á byssu sem fannst með þeim. Fréttin hefur verið uppfærð. Síðast klukkan 23:40.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira