Uppgjörið: FH - KA 1-2 | Dalur FH-inga dýpkar Magnús Sigurjón Olsen Guðmundsson skrifar 17. maí 2026 19:45 KA-menn unnu þökk sé marki undir lokin. Þeir voru manni fleiri allan síðari hálfleikinn. Vísir/Anton Brink FH er áfram án sigurs í Bestu deild karla eftir 1-2 tap gegn KA á Kaplakrikavelli í sjöundu umferð deildarinnar í kvöld. Norðanmenn tryggðu sér sigurinn með marki Jakobs Snæs Árnasonar undir lok leiks eftir mikla dramatík, rautt spjald og langa töf vegna bilunar í vökvunarkerfi vallarins. FH byrjaði leikinn af krafti og heimamenn voru ákveðnari á fyrstu mínútunum. Kjartan Kári Halldórsson og Tómas Orri Róbertsson ógnuðu marki KA snemma leiks og Hafnfirðingar fengu verðlaun fyrir góðan kafla þegar Benjamín Bæring Þórsson kom þeim yfir á 32. mínútu. Eftir hornspyrnu og klafs í teignum datt boltinn fyrir fætur Benjamíns sem kláraði af yfirvegun í netið. Við markið fengu FH-ingar blóð á tennurnar og héldu áfram að ógna. Í uppbótartíma í fyrri hálfleik fékk Kristján Snær Frostason rautt spjald hjá FH-ingum. Danjel Djuric hafði gert vel og tætt upp völlinn. Hann átti fína stungusendingu á Hallgrím Mar en Kristján Snær ýtti við honum og fékk verðskuldað rautt spjald. Rauða spjaldið var vendipunktur í dag.Vísir/Anton Brink Staðan í hálfleik 1-0 heimamönnum í vil. Seinni hálfleikurinn hófst seint eftir að óvenjulegt atvik stal senunni í hléinu þegar úðari á Kaplakrikavelli bilaði og neitaði að fara niður í jörðina. Starfsmenn vallarins þurftu að rífa upp torf og gera við búnaðinn áður en hægt var að hefja leik á ný. FH mætti til leiks í seinni hálfleik af krafti. Þeir héldu áfram að ógna þrátt fyrir að vera manni færri. Þegar boltinn fór aftur af stað nýtti KA sér liðsmuninn. Jeppe Pedersen jafnaði leikinn á 54. mínútu eftir mikinn darraðadans við vítateig FH. Gestirnir sóttu svo sigurmarkið af meiri þunga eftir því sem leið á leikinn á meðan FH-ingar vörðust af miklum krafti. Sigurmarkið kom loks á 86. mínútu þegar Jakob Snær Árnason, sem hafði komið inn af bekknum, var fyrstur að átta sig í teig FH eftir klafs og skoraði af stuttu færi. FH reyndi að svara á lokamínútunum en Stubbur í marki KA sá við þeim tilraunum sem á hann komu. KA hefur þar með unnið þrjá leiki í röð og er komið með sjö stig í deildinni eftir erfiða byrjun á tímabilinu. FH situr hins vegar áfram á botni deildarinnar með aðeins tvö stig og hefur enn ekki fundið leiðina að fyrsta sigrinum. Dalurinn heldur áfram að dýpka hjá FH og verður fróðlegt að sjá hakkavél stuðningsmanna þeirra næstu dagana. Dómararnir standa yfir holunni sem myndaðist á vellinum í hálfleik.Vísir/Anton Brink Atvik leiksins Atvik leiksins var aftur á móti rauða spjaldið sem Kristján Snær Frostason fékk í lok fyrri hálfleiks. KA-menn voru þar mættir í stórhættulega skyndisókn eftir að Danijel Dejan Djuric vann boltann á miðjum velli. Hann sendi stungusendingu á Hallgrím Mar sem var kominn inn fyrir. Kristján Snær sá ekkert annað í stöðunni en að brjóta á honum og fékk verðskuldað rautt spjald. FH-ingar því manni færri allan seinni hálfleikinn. Þetta atvik breytti leiknum. Stjörnur og skúrkar Stjörnur dagsins voru Daniel Djuric hjá KA og Benjamín Bæring Þórsson hjá FH. Djuric var skapandi í sóknarleik norðanmanna og olli varnarmönnum usla trekk í trekk. Hann var líka grimmur í varnarleiknum og henti sér í alla bolta. Skúrkurinn er Kristján Snær Frostason út af rauða spjaldinu. Dómararnir Dómari leiksins var Arnar Þór Stefánsson og aðstoðarmenn hans voru þeir Kristján Már Ólafs og Antoníus Bjarki Halldórsson. Arnar Þór fékk nóg að gera. Hann lét leikinn fljóta vel framan af og á hrós skilið fyrir það. Hann gaf rautt spjald í fyrri hálfleik og fær hrós skilið fyrir sína frammistöðu. Lét leikinn fljóta vel og þannig viljum við hafa það. Stemning og umgjörð Umgjörðin í Hafnarfirði var til fyrirmyndar. Veðrið var milt og skartaði völlurinn sínum fegursta. Fyrr um daginn var handboltamót í Kaplakrikanum og láku því íþróttir af hverju strái. Tómas Meyer fjölmiðlafulltrúi FH sýndi blaðamönnum mikla gestrisni og á klúbburinn hrós skilið fyrir fagmennskuna. Stuðningsmenn liðanna héldu sig til hlés. Viðtöl Jóhannes Karl: Ég er að leiða þetta verkefni og það mun taka tíma Jóhannes Karl segir þolinmæðisverk fram undan.Vísir / Hulda Margrét Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH var skúffaður í leikslok. Hann sagðist enn vera að melta leikinn en rauða spjaldið hefði haft mikil áhrif á framvinduna. Jóhannes Karl sagði: „Það var náttúrulega erfitt að missa mann út af í stöðunni 1-0 og hvernig það æxlaðist í lok fyrri hálfleiks. Mér fannst tíminn vera liðinn í fyrri hálfleik, eða maður myndi halda það. En á sama skapi er þetta klaufalegt hjá okkur að lenda í þessari stöðu akkúrat á þessu mómenti. Við þurftum að gera breytingar til að aðlagast þessari stöðu inn í seinni hálfleikinn.“ Aðspurður sagðist Jóhannes Karl vera ánægður með viðbragð sinna manna við þeim breytingum sem hann lagði upp með. „Mér fannst frábært hugarfar hjá mínum mönnum frá A-Ö. Líka fyrrihálfleikurinn. Hann var erfiður og við vorum að tapa boltanum í uppspilinu okkar. Við héldum samt áfram og reyndum að skapa okkur tækifæri með boltann, færa hann milli kanta og aftur fyrir þegar það átti við. Við missum menn í meiðsli í fyrri hálfleik og svo þetta rauða spjald. Það riðlar náttúrulega leiknum hjá okkur“. Jóhannes sagði að KA menn hefðu farið að þrýsta ansi vel á hans menn en heppnis stimpill hefði verið á jöfnunarmarki KA-manna. „Þetta er skot í mann hjá okkur og það fer í svakalega fallegan boga yfir Jökul í markinu og í fjærhornið. Það var svekkjandi að fá það í andlitið. Við fengum að mínu viti hættulegri færi en KA-mennirnir í seinni hálfleik. Við fengum þrjú þokkalega góð tækifæri til að setja annað mark og það hefði gert ansi mikið fyrir okkur. Svo á sama skapi er annað mark þeirra svekkjandi. Það er skot, breytir um stefnu og fyrir tærnar á KA-manni sem tryggir þeim sigurinn“. Jóhannes sagðist vera svekktur að hafa ekki fengið neitt úr leiknum því honum fannst leikmenn hans eiga það skilið. Hann sagði hugarfarið hjá leikmönnum hans hafa verið gott og frammistaðan einnig. Jóhannes sagði að hans leikmenn hefðu komist í góðar krossstöður á síðasta þriðjung vallarins en því miður hefði liðið ekki náð að nýta sér þær. Undanfarna daga hafa sérfræðingar skeggrætt gengi Hafnfirðinga í upphafi sumars og framtíð Jóhannesar Karls. Þar hafa þeir sagt að sæti hans sem þjálfara sé orðið rjúkandi heitt. Aðspurður um þessar vangaveltur sagði Jói Kalli: „Ég er búinn að vinna í fótbolta í þrjátíu og eitthvað ár og læt þetta ekki hafa nein áhrif á mig. Ég held ótrauður áfram. Auðvitað hefur fólk samt rétt á sinni skoðun. Stuðningsmenn FH hafa rétt á sinni skoðun. Rétt eða rangt. Þá er ég hérna núna. Ég er að leiða þetta verkefni og það mun taka tíma. Við munum leggja hart á okkur bæði ég og leikmennirnir. Við látum ekki brjóta okkur niður. Við nýtum frekar svona stundir til að byggja okkur upp og komum sterkari út úr þessu fyrir vikið“. Hallgrímur: Við ætlum að nýta okkur þetta og vinna vel í að bæta okkur Hallgrímur Jónasson var sáttur við sigurinn.vísir/Hulda Margrét Hallgrímur Jónasson þjálfari KA var ánægður í leikslok. Hann sagðist vera ánægður með spil sinna manna og leikinn. „Við lendum marki undir eftir horn. Það var vel gert hjá FH. Þetta er annar bolti eftir horn og ég sá ekki hvað gerðist. En mér fannst við standa okkur vel. Við höfum ekki snert gras í rosa marga mánuði og maður vissi ekki hvernig spilið myndi ganga. En mér fannst bæði lið ráða ágætlega við völlinn“. Hallgrímur sagði að hann hafi þurft að breyta upplegginu eftir að Hafnfirðingar fengu að líta rauða spjaldið. „Maður þarf að hugsa. Hvernig verður leikmyndin. Þeir munu liggja aftarlega og það er ekki alltaf auðvelt að opna lið sem eru einum færri. Sérstaklega ekki þegar grasið er ekki fullkomið“. Þjálfarinn sagði vera ánægður með hugarfar sinna manna. „Ég er ótrúlega ánægður að sjá hvernig við vorum þolinmóðir. Létum boltann ganga hratt og vorum bara klókir í seinni hálfleik. Þetta hefði getað farið á hvorn háttinn sem er. Hvort maður nái seinni markinu eða ekki og við náðum því“.Hallgrímur sagðist vera ánægður með þetta svar sinna manna.„Þetta var alvöru hugarfar. Á erfiðum útivelli. Búnir að lenda undir. Þannig það voru gríðarlega mörg jákvæð svör sem ég fékk“. Hallgrímur sagðist vera glaður með þriðja sigurleik sinna manna í röð en sagði svo: „Það er samt mikilvægt að við áttum okkur á því að við eigum samt aðeins í land. Það er að segja eins og ég vil sjá liðið mitt. Það er samt þannig að ef þú leggur þig hundrað prósent fram þá getur þú unnið leiki þó það sé ekki allt fullkomið. Þegar þú vinnur leiki þá ertu meira jákvæður fyrir að fara yfir hvað þarf að bæta. Meðan þú ferð í smá vörn þegar þú ert að tapa leikjum. Við ætlum að nýta okkur þetta og vinna vel í því að bæta okkur“. Hallgrímur gekk brosandi til búningsklefa með þrjú stig í pokanum. Besta deild karla FH KA
Keflavík - Stjarnan 1-1| Stjarnan slapp með stig frá Keflavík í skemmtilegum leik Íslenski boltinn
Keflavík - Stjarnan 1-1| Stjarnan slapp með stig frá Keflavík í skemmtilegum leik Íslenski boltinn