Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Kjartan Kjartansson skrifar 29. apríl 2026 10:40 Lón hafa myndast við sporði fjölda skriðjökla Vatnajökuls eins og Hoffellsjökuls þegar þeir hopa vegna hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. Massatap íslenskra jökla var það næstmesta frá upphafi í fyrra. Vísir/Vilhelm Hiti var yfir meðallagi í 95 prósentum Evrópu frá norðurskautinu til Miðjarðarhafs í fyrra og massatap íslenskra jökla var það annað mesta frá upphafi mælinga. Veðurfyrirbrigði sem er að gerjast í Kyrrahafi er líklegt til þess að velgja jarðarbúum enn frekar undir uggum á næstunni.
Síðasta ár var eitt það hlýjasta í Evrópu í mælingasögunni samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) og evrópskrar veðurfræðistofnunar sem varpar ljósi á áhrif manngerðar hlýnunar á álfuna. WMO telur árið það hlýjasta frá upphafi en evrópska loftslagsstofnunin Kópernikus það annað eða þriðja hlýjasta. Hlýindunum fylgdu skæðir gróðureldar, gríðarlegt hop jökla og þurrkur. Samantha Burgess, aðstoðarforstjóri Kópernikusar, segir þetta í fyrsta skipti sem svo gott sem öll álfan er yfir meðallagi í hita. Hitabylgja sem gekk yfir Skandinavíu sunnan norðurskautsbaugs í júlí er sögð sú lengsta og skæðasta sem sögur fara af. Hún geisaði í þrjár vikur og fór hitinn í og við norðurheimskautsbauginn yfir þrjátíu gráður. Í bænum Frosta í Þrændalögum fór hitinn í 34,9 gráður í hitabylgjunni. Hlýnað hefur um tvær og hálfa gráðu í Evrópu borið saman við viðmiðunartímabil fyrir iðnbyltingu. Það er umtalsvert umfram heimsmeðaltalið sem hefur hækkað um 1,4 gráður. Ástæðan fyrir því hversu hraðar Evrópa hlýnar en aðrir heimshlutar er meðal annars sagðir landfræðilegir og veðurfræðilegir þættir. Hreinna loft og minnkandi snjóþekja þýðir einnig að álfan endurvarpar minna sólarljósi aftur út í geim en áður. Mesta hlutfallslega massatapið á Íslandi Jöklar um alla Evrópu töpuðu massa og snjóþekja í mars var sú þriðja minnsta frá upphafi mælinga árið 1983. Hvoru tveggja er rakið til hitans og þess að úrkoma var undir meðallagi. Á Íslandi var massatap jökla það næstmesta frá upphafi mælinga. Grænlandsjökull tapaði 139 milljörðum tonn af ís í fyrra sem er sagt helmingi meiri ís en í öllum jöklum Alpafjalla samanlagt. Grafið til vinstri sýnir massatap jökla í Evrópu frá 1980. Hlutfallslega mesta massatapið í fyrra var í íslenskum jöklum.ENVEO, IMBIE, WGMS. Credit: C3S/ECMWF/ENVEO/WGMS Gróðureldar brenndu rúmlega milljón hektara lands í Evrópu í fyrra. Þeir hafa aldrei brennt stærra landsvæði til þessa. Á sama tíma var rennsli í sjötíu prósentum áa í álfunni undir meðaltali ellefu mánuði ársins. Hitinn var ekki aðeins yfir landi því sjávarhiti var sá hæsti sem mælst hefur og sterkar hitabylgjur urðu á 86 prósentum af evrópskum hafsvæðum á árinu. Þetta var fjórða árið í röð sem sjávarhiti í Evrópu slær met. Sérstaklega svæsnum El niño spáð Eftir svalan vetur er hitinn aftur kominn í hæstu hæðir í Evrópu. Veðurfyrirbrigðið El niño sem er að gerjast í Kyrrahafi er talið líklegt til þess að magna enn þá manngerðu hlýnun sem þegar á sér stað á næstu misserum. Fyrirbrigðið er almennt tengt við hærri meðalhita á jörðinni auk breytinga á úrkomumynstri á ólíkum stöðum á jörðinni. Myndin sýnir útbreiðslu hitabylgja á evrópskum hafsvæðum árið 2025. Liturinn er dekkri eftir því sem hitabylgjurnar voru skæðari. Svæðið suðaustan við Ísland er dökkrautt.DMI/C3S/ECMWF. Spár eru um að El niño þessa árs verði sérstaklega sterkur. Síðast þegar áhrifa El niño gætti var árið 2024 sem er hlýjasta ár á jörðinni frá upphafi mælinga. Tæpur helmingur raforku með endurnýjanlegum orkugjöfum Eina leiðin til þess að stöðva hlýnun jarðar af völdum manna er að hætta losun gróðurhúsalofttegunda. Meginþorri hennar stafar af bruna manna á jarðefnaeldsneyti; kolum, olíu og gasi. Rúmlega 46 prósent af raforku í Evrópu voru framleidd með endurnýjanlegum hætti í fyrra. Hlutur sólarorku hefur aldrei verið hærri en í fyrra en þá nam hann 12,5 prósentum af heildarframleiðslunni. „Sú staðreynd að Evrópa hlýnar tvöfalt hraðar en aðrar heimsálfur er áhyggjuefni og við verðum að grípa til aðgerða. Við þurfum að drífa áfram umbreytinga sem gera Evrópu umtalsvert undirbúnari fyrir og þolnari fyrir loftslagsáhrifum,“ segir Dusan Chrenek frá loftslagsdeild framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Loftslagsmál Vísindi Jöklar á Íslandi Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira