Innlent

Tveir hand­teknu starfs­menn Eimskipa

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lögreglan rannsakar innflutning á verulegu magni af sterkum fíkniefnum.
Lögreglan rannsakar innflutning á verulegu magni af sterkum fíkniefnum. Vísir/Vilhelm

Tveir starfsmenn Eimskipa sæta gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að smygli á verulegu magni af sterkum fíkniefnum til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða fíkniefni í vökvaformi. Húsleit var framkvæmd á heimili þriðja manns sem var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í dag. 

Í tilkynningu frá lögreglu í dag segir að alls hafi sex menn verið handteknir í gær í þágu rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Þrír sæta gæsluvarðhaldi og hefur þremur þeirra verið sleppt úr haldi lögreglu.


Talið er að efnunum hafi verið smyglað um borð í Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips, sem kom til hafnar í gær. Lögreglan var með viðbúnað á hafnarsvæði Eimskips í gær en það hefur ekki haft áhrif á siglingar Dettifoss sem hélt ferð sinni áfram úr höfn í gær. 

Í gær var einnig ráðist í húsleit á heimili karlmanns á fertugsaldri sem sætir gæsluvarðhaldi. Um er að ræða einbýlishús þar sem samkvæmt heimildum fréttastofu var lagt hald á fjölda muna, allt frá reiðhjólum til armbandsúra. Sá er einnig grunaður um líkamsárás á þorrablóti HK í Kórnum í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×