Hættir í NFL til að fara að bjarga mannslífum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2026 06:36 Bryce Huff verður ekki með San Francisco 49ers á næstu leiktíð en hér sést hann lesa í búningsklefa liðsins. Getty/Michael Zagari NFL-leikmaðurinn Bryce Huff er búinn að setja skóna upp á hilluna þrátt fyrir að vera aðeins 27 ára gamall.
Varnarmaðurinn hjá San Francisco 49ers tilkynnti ákvörðun sína í myndbandi sem hann birti á Instagram-síðu sinni. Huff er að skilja eftir heilmikinn pening á borðinu en hann hefði átt að fá einnar milljónar dala bónus frá 49ers á föstudag fyrir að vera enn á leikmannaskrá eða um 126 milljónir íslenskra króna. Hvorki stærstur né sterkastur „Ég er hættur í fótbolta,“ sagði Huff. „Ég byrjaði að spila fótbolta þegar ég var fjögurra ára. Þegar ég var að alast upp var ég hvorki stærstur né sterkastur og átti ekki marga vini. Það eina sem ég hafði var leikurinn. Fótboltinn hélt mér á jörðinni. Hann gaf mér eitthvað til að halda í,“ sagði Bryce Huff. Huff var ekki valinn í nýliðavali NFL-deildarinnar eftir að hafa spilað með Memphis en samdi við New York Jets árið 2020. Hann var þar í fjögur af sex tímabilum sínum í NFL-deildinni áður en hann skrifaði undir þriggja ára, 51,1 milljóna dala samning við Philadelphia Eagles árið 2024. Það var verðmætasti samningur sem leikmaður, annar en leikstjórnandi, sem ekki var valinn í nýliðavalinu, hafði gert í sögu NFL-deildarinnar. Honum var skipt til San Francisco 49ers árið 2025. Getur gefið heiminum meira Huff er að hætta í fótbolta til að einbeita sér að einhverju stærra. „Í gegnum allt þetta áttaði ég mig á einu: Fótboltinn hefur verið allt mitt líf,“ sagði Huff í myndbandi sínu. „Ég hef spilað síðan ég var 4 ára, en 27 ára gamall veit ég að ég get gefið heiminum meira en bara fótbolta.“ Þessi Super Bowl-meistari mun einbeita sér að fyrirtækinu sem hann stofnaði, Naberstone. Samkvæmt LinkedIn-síðu Huff stofnaði hann Naberstone í mars 2024. Markmið fyrirtækisins er að útvega öryggisinnviði til að takast á við vandamál tengd litíumrafhlöðum. „Þetta verkefni mun bjarga mannslífum,“ sagði Huff á Instagram. View this post on Instagram A post shared by ClutchPoints (@clutchpoints)
NFL Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Sjá meira