„Sárt að kveðja gegn eigin vilja“ Sindri Sverrisson skrifar 9. mars 2026 10:43 Sólveig Jóhannesdóttir Larsen varð bæði Íslands- og bikarmeistari með Val árið 2022, á því sem reyndist lokaár hennar í fótboltanum. Valur Þrátt fyrir að vera aðeins 25 ára gömul hefur Sólveig Jóhannesdóttir Larsen ekki getað spilað fótbolta síðustu þrjú ár og neyðst til að leggja skóna á hilluna. Þessi fyrrverandi Íslands- og bikarmeistari vinnur nú að því að verða verkjalaus og geta hreinlega stundað almenna hreyfingu. Frá þessu greinir Sólveig í pistli á samfélagsmiðlum þar sem hún segist hafa glímt við slæm meiðsli í mjöðm síðustu þrjú ár. „Ég hefði aldrei trúað því að ferill minn myndi enda aðeins 22 ára gömul. Innra með mér er enn lítil fótboltastelpa sem elskar fótbolta og á stóra drauma því er sárt að kveðja gegn eigin vilja,“ skrifar hún. Sólveig meiddist illa eftir að hafa verið komin út í atvinnumennsku, hjá Örebro í Svíþjóð, og náði því ekki að spila með liðinu. Hún kom aftur til Íslands og inn í leikmannahóp Breiðabliks, uppeldisfélags síns, sumarið 2023 en spilaði aldrei meira. Hún hafði áður til að mynda orðið Íslands- og bikarmeistari með Val 2022 og skorað fyrir U23-landslið Íslands í sigri á A-landsliði Eistlands sama ár. „Snýst ekki lengur um að komast aftur á völlinn“ Mjaðmarmeiðslin frá því í janúar 2023 fylgja henni enn. „Í ágúst 2025 fór ég í aðra aðgerð á mjöðminni. Bataferlið snýst ekki lengur um að komast aftur á völlinn heldur að vera verkjalaus og geta stundað almenna hreyfingu sem ég tók sem sjálfsögðu að geta gert áður fyrr. Fótboltinn gaf mér vini, tækifæri og ógleymanlegar upplifanir. Ég lít til baka með þakklæti, söknuði og mikilli sorg að hafa ekki getað haldið áfram,“ skrifar Sólveig. Pistil hennar má sjá í heild hér að neðan.
Frá þessu greinir Sólveig í pistli á samfélagsmiðlum þar sem hún segist hafa glímt við slæm meiðsli í mjöðm síðustu þrjú ár. „Ég hefði aldrei trúað því að ferill minn myndi enda aðeins 22 ára gömul. Innra með mér er enn lítil fótboltastelpa sem elskar fótbolta og á stóra drauma því er sárt að kveðja gegn eigin vilja,“ skrifar hún. Sólveig meiddist illa eftir að hafa verið komin út í atvinnumennsku, hjá Örebro í Svíþjóð, og náði því ekki að spila með liðinu. Hún kom aftur til Íslands og inn í leikmannahóp Breiðabliks, uppeldisfélags síns, sumarið 2023 en spilaði aldrei meira. Hún hafði áður til að mynda orðið Íslands- og bikarmeistari með Val 2022 og skorað fyrir U23-landslið Íslands í sigri á A-landsliði Eistlands sama ár. „Snýst ekki lengur um að komast aftur á völlinn“ Mjaðmarmeiðslin frá því í janúar 2023 fylgja henni enn. „Í ágúst 2025 fór ég í aðra aðgerð á mjöðminni. Bataferlið snýst ekki lengur um að komast aftur á völlinn heldur að vera verkjalaus og geta stundað almenna hreyfingu sem ég tók sem sjálfsögðu að geta gert áður fyrr. Fótboltinn gaf mér vini, tækifæri og ógleymanlegar upplifanir. Ég lít til baka með þakklæti, söknuði og mikilli sorg að hafa ekki getað haldið áfram,“ skrifar Sólveig. Pistil hennar má sjá í heild hér að neðan. Ég hef elskað íþróttir frá því ég man eftir mér og þær verið stór partur af lífi mínu frá barnsaldri. Í janúar 2023 meiddist ég illa á mjöðm og síðan hef ég ekki getað hreyft mig almennilega í rúmlega 3 ár. Ég meiddist úti í atvinnumennsku í Svíþjóð og kom heim til Íslands um sumarið í molum andlega og líkamlega. Ég leitaði til margra sérfræðinga en ekkert fannst að í mjöðminni. Ég samdi við Breiðablik stuttu eftir heimkomu og er þakklát fyrir stuðninginn sem ég fékk þar. Ekkert breyttist og „ekkert var að” samkvæmt myndatökum. Ég krafðist þess að fara í aðgerð sem reyndist mikil barátta og fór hún fram vorið 2024 og við tók nokkurra mánaða bataferli. Barátta í rúmlega ár af óvissu virtist loksins að bera árangur og ég stefndi á að spila síðustu leikina í deildinni með Breiðabliki. Bataferlið gekk vel en nokkrum mánuðum síðar var ég aftur orðin verkjuð daglega og komin á núllpunkt. Samningurinn við Breiðablik rann út og ég þurfti að kveðja fótboltann í bili. Í fyrsta skipti frá því ég man eftir mér var ég ekki í neinu liði né íþrótt og fann fyrir miklum tómleika og tilgangsleysi. Ég þráði ekkert heitar en að geta farið á æfingu. Ég tárast við að sjá aðra spila og að tala um fótbolta kom mér í uppnám. Ég á enn erfitt með að sætta mig við að geta ekki spilað aftur íþróttina sem ég lifði að miklu leyti fyrir. Tíminn eftir meiðslin hefur litast af þunglyndi, vonleysi og hjálparleysi. Ég er því afar þakklát nánasta fólki og góðri sálfræðiþjónustu sem hafa stutt mig í gegnum þetta. Ég skrifa þennan pistil til að loka mínum fótboltakafla. Ég gaf mig alltaf alla í fótboltann á meðan ég gat. Ég hefði aldrei trúað því að ferill minn myndi enda aðeins 22 ára gömul. Innra með mér er enn lítil fótboltastelpa sem elskar fótbolta og á stóra drauma því er sárt að kveðja gegn eigin vilja. Í ágúst 2025 fór ég í aðra aðgerð á mjöðminni. Bataferlið snýst ekki lengur um að komast aftur á völlinn heldur að vera verkjalaus og geta stundað almenna hreyfingu sem ég tók sem sjálfsögðu að geta gert áður fyrr. Fótboltinn gaf mér vini, tækifæri og ógleymanlegar upplifanir. Ég lít til baka með þakklæti, söknuði og mikilli sorg að hafa ekki getað haldið áfram.
Ég hef elskað íþróttir frá því ég man eftir mér og þær verið stór partur af lífi mínu frá barnsaldri. Í janúar 2023 meiddist ég illa á mjöðm og síðan hef ég ekki getað hreyft mig almennilega í rúmlega 3 ár. Ég meiddist úti í atvinnumennsku í Svíþjóð og kom heim til Íslands um sumarið í molum andlega og líkamlega. Ég leitaði til margra sérfræðinga en ekkert fannst að í mjöðminni. Ég samdi við Breiðablik stuttu eftir heimkomu og er þakklát fyrir stuðninginn sem ég fékk þar. Ekkert breyttist og „ekkert var að” samkvæmt myndatökum. Ég krafðist þess að fara í aðgerð sem reyndist mikil barátta og fór hún fram vorið 2024 og við tók nokkurra mánaða bataferli. Barátta í rúmlega ár af óvissu virtist loksins að bera árangur og ég stefndi á að spila síðustu leikina í deildinni með Breiðabliki. Bataferlið gekk vel en nokkrum mánuðum síðar var ég aftur orðin verkjuð daglega og komin á núllpunkt. Samningurinn við Breiðablik rann út og ég þurfti að kveðja fótboltann í bili. Í fyrsta skipti frá því ég man eftir mér var ég ekki í neinu liði né íþrótt og fann fyrir miklum tómleika og tilgangsleysi. Ég þráði ekkert heitar en að geta farið á æfingu. Ég tárast við að sjá aðra spila og að tala um fótbolta kom mér í uppnám. Ég á enn erfitt með að sætta mig við að geta ekki spilað aftur íþróttina sem ég lifði að miklu leyti fyrir. Tíminn eftir meiðslin hefur litast af þunglyndi, vonleysi og hjálparleysi. Ég er því afar þakklát nánasta fólki og góðri sálfræðiþjónustu sem hafa stutt mig í gegnum þetta. Ég skrifa þennan pistil til að loka mínum fótboltakafla. Ég gaf mig alltaf alla í fótboltann á meðan ég gat. Ég hefði aldrei trúað því að ferill minn myndi enda aðeins 22 ára gömul. Innra með mér er enn lítil fótboltastelpa sem elskar fótbolta og á stóra drauma því er sárt að kveðja gegn eigin vilja. Í ágúst 2025 fór ég í aðra aðgerð á mjöðminni. Bataferlið snýst ekki lengur um að komast aftur á völlinn heldur að vera verkjalaus og geta stundað almenna hreyfingu sem ég tók sem sjálfsögðu að geta gert áður fyrr. Fótboltinn gaf mér vini, tækifæri og ógleymanlegar upplifanir. Ég lít til baka með þakklæti, söknuði og mikilli sorg að hafa ekki getað haldið áfram.
Íslenski boltinn Besta deild kvenna Breiðablik Valur Mest lesið Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Fótbolti Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Fótbolti Fleiri fréttir Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Tuchel himinlifandi: „Dásamlegt að sjá leikmenn stolta að spila fyrir landið sitt“ Skera niður hjá stelpunum Frækinn sigur Englendinga á Azteca Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Mbappé: Héldu sennilega að við myndum mæta í smóking Skutu upp flugeldum til að trufla nætursvefn ensku leikmannanna Neitar því að leikmennirnir sínir hafi notað Viagra Segja hegðun Paragvæ til skammar Trump þakkar FIFA fyrir Balogun fær Ronaldo-meðferð hjá FIFA og spilar gegn Belgum Real Madrid staðfestir komu Hollendingsins Rígur úr ensku úrvalsdeildinni heldur áfram í kvöld Segir Klopp taka við þýska landsliðinu Segir skilið við bæði landslið og félagslið Maður dagsins á HM: „Býflugan“ fann gleðina aftur í Katalóníu Sautján ára hetja Breiðabliks: Kemur þegar maður trúir á Guð og sig sjálfan Sjáðu mörk og atvik helgarinnar í Bestu deildinni „Gleður mitt Blikahjarta“ Dramatík í kringum enska landsliðið: Eldingar, hótelhávaði og njósnir „Með ólíkindum að við höfum tapað þessum leik“ Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Sjá meira