„Hægt að ná langt með því að vera hress og skemmtilegur“ Aron Guðmundsson skrifar 21. febrúar 2026 09:31 Jón Erik er kominn heim til Íslands í stutt stopp eftir Vetrraólympíuleikana þar sem hann náði frábærum árangri. Vísir/Sigurjón Skíðakappinn Jón Erik Sigurðsson er nú kominn heim eftir frábært gengi á Vetrarólympíuleikunum. Þar vakti hann athygli fyrir jákvætt og hressandi viðhorf en þurfti einnig að leiðrétta misskilning sem fór á kreik þegar sumir töldu hann hreinlega vera að skemmta sér of mikið.
Þetta voru fyrstu Vetrarólympíuleikar Jóns Eriks og stóð hans sig frábærlega. Eftir vonbrigði í stórsvigi steig hann upp og hafnaði í 25.sæti í svigi sem er besti árangurs Íslendings í greininni í tvo áratugi. Frábær reynsla fyrir drenginn 21 árs gamla. „Ég var náttúrulega ekki búinn að gera mér grein fyrir því hversu langt var liðið frá því að einhver gerði góða hluti en þetta fór bara fram úr væntingum mínum. Ég var ekki að búast við þessu þegar að ég hélt út á leikana, hvað þá að ég fengi að leiða í einhvern tíma og þar fram eftir götunum. Þetta er allt svona draumur að verða að veruleika.“ „Það verður allt einhvern veginn auðvelt eftir þessa baráttu í gegnum þetta, að fara á þetta stóra svið. Það verður erfitt að vera stressaður eftir þetta finnst mér.“ Jón vakti athygli fyrir jákvætt og skemmtilegt viðhorf á leikunum. „Það sem ég vil sýna fólki er að það er alveg hægt að ná langt með því að vera hress og skemmtilegur líka. Það má alveg hafa gaman, það þarf ekki að vera leiðinlegt til að ná árangri. Það sem ég hef alltaf gert er að reyna hafa gaman að öllu því sem ég er að gera því ég nenni ekki að gera eitthvað ef mér finnst það leiðinlegt. Ég vil mest sýna hvernig ég er og hvað það er gaman að vera í íþróttum. Maður þarf ekki að vera bara í fýlu þegar að það er að ganga vel.“ Jón Erik var fánaberi Íslands í Livignio.Cameron Spencer/Getty Images Hefur aldrei drukkið áfengi En var Jón væri að skemmta sér of mikið? Hann var virkur á samfélagsmiðlinum TikTok í kringum leikana og birti myndband af skemmtidegi sínum með vinum degi áður en hann náði besta árangri íslendings í svigi í tvo áratugi. Héldu einhverjir að drengurinn væri alveg að missa það og töldu hann slompaðan í umræddu myndbandi. Jón var fljótur að leiðrétta þann misskilning. „Ég hef ekki drukkið áfengi og að ég myndi ekki gera það fyrir keppni og ég var sofnaður fyrir klukkan tíu þetta kvöld. Ég vildi bara sýna að þetta skiptir mig ótrúlega miklu máli, þetta var ekki bara þannig að ég væri loksins kominn út og væri þá bara drullusama, tæki day of fun með strákunum og svo vona það besta. Það var alls ekki þannig.“ Það er alveg hægt að skemmta sér án áfengis? „Já. Ég hef allavegana náð að gera það núna í að verða tuttugu og eitt ár og mun bara halda því áfram.“ En hvað tekur nú við hjá Íslendingnum unga? „Núna taka við enn þá meiri æfingar, við ætlum að fara enn þá lengra. Ég er bara tuttugu og eins árs og ætla mér að fara langt. Mér finnst ég eiga fullt inni og hef skíðað með fullt af þessum gæjum í toppbaráttunni á æfingu. Ég er ekki svona langt frá þeim á æfingum. Ég veit alveg hvað ég get og vil fara að sýna það.“
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Sjá meira