Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Björn Daníel Sverrisson skrifar 23. október 2026 20:52 Stólarnir lentu í vandræðum á Höfn í kvöld en héldu Sindra í sex stigum í lokaleikhlutanum. Taiwo Badmus var með 15 stig og 8 fráköst. vísir/Guðmundur Þórlaugarson Tindastóll er með fullt hús stiga í Bónusdeild karla í körfubolta eftir þriðja sigur sinn í röð. Tindastóll vann sjö stiga sigur á Sindra, 78-71, og heimamenn í Sindra hafa því tapað fyrstu þremur leikjum tímabilsins. Leikurinn í kvöld fór rólega af stað og bæði lið virtust þurfa smá tíma til að finna taktinn. Allt var í járnum frá fyrstu mínútu og liðin skiptust á að skora. Kaleb Higgins fór fyrir sínum mönnum í Sindra og var prímusmótorinn í sókninni. Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 21-20. Hið sama var uppi á teningnum í upphafi annars leikhluta. Jafnræði var með liðunum og hvorugt liðið virtist ætla að gefa tommu eftir. Ragnar Ágústsson var drjúgur fyrir Stólana og setti niður nokkrar mikilvægar körfur. Þegar leið á leikhlutann náði Sindri hins vegar að slíta sig frá Stólunum eftir tvær frábærar sóknir og það ætlaði allt um koll að keyra í Ice-Lagoon höllinni. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 45-39, Sindra í vil. Higgins og Meiers sáu að mestu um stigaskorun Sindra í fyrri hálfleik og reyndust Stólunum erfiðir viðureignar. Varnarleikur liðsins var einnig öflugur. Tindastóll átti erfitt með að finna auðveldar körfur og hitti illa þegar þeir fengu opið skot. Mikill barningur einkenndi þriðja leikhlutann og leikmenn beggja liða tókust hart á. Um miðjan leikhlutann hótuðu Stólarnir áhlaupi og virtust ætla að stíga á bensíngjöfina af fullum krafti. Birgir Leó var á öðru máli og kæfði áhlaupið í fæðingu með mikilvægum körfum. Liðin héldu áfram að skiptast á körfum og hitastigið í húsinu var orðið yfir leyfilegum mörkum á tímabili. Eftir þriðja leikhluta leiddi Sindri með einu stigi þvert á allar spár fyrir leik. Fjórði leikhlutinn var lítið fyrir augað hvað stigaskor varðar. Það var frábær varnarleikur Tindastóls sem gerði útslagið en gestirnir lokuðu nánast fyrir allar sóknaraðgerðir Sindra sem skoruðu aðeins 6 stig í síðasta leikhlutanum. Á endanum voru það Tindastóll sem reyndust sterkari á lokakaflanum og sigldu sigrinum heim. Sterkur útisigur hjá Stólunum, sem sýndu mikla seiglu eftir að hafa verið undir í hálfleik. Fyrir Sindra er niðurstaðan hins vegar svekkjandi eftir flotta frammistöðu þar sem liðið lék vel bróðurpart leiksins en Sindramenn geta borið höfuðið hátt og tekið margt jákvætt með sér úr leiknum. Atvik leiksins Verð að gefa VAR-herberginu heiðurinn af þessu. Í fjórða leikhluta vildi Nebojsa, þjálfari Sindra, að það yrði skoðað hvort Sindri ætti boltann. Þegar dómarar leiksins komu að skjánum var ekkert að sjá, einungis hvítur skjár. Á endanum tóku dómararnir ákvörðun um að bíða ekki lengur eftir þessu og Tindastóll hélt boltanum. Stjörnur og skúrkar Kaleb Higgins og Martin Meiers báru uppi sóknarleik Sindra í leiknum. Kaleb var síógnandi með hraða sínum og Meiers sýndi sinn allra besta leik hjá Sindra síðan hann kom til liðsins. Birgir Leó var einnig óhræddur við að taka skotin sín í dag og stóð sig með prýði. Hjá Tindastól báru Ragnar Ágústsson og Henry Murkey af. Báðir stigu upp þegar Tindastóll þurfti á stigum að halda og geta gengið sáttir frá borði með frammistöðu sína í þessum leik. Demerquis Bost átti erfiðan dag. Hann hitti illa, átti margar slakar sendingar og virkaði pirraður frá fyrstu mínútu. Sigtryggur Arnar hefur einnig átt betri leiki. Dómararnir Sigmundur Már, Jakob Árni og Stefán Kristinsson sáu um dómgæslu í kvöld. Flottir í kvöld, eins og á flestum kvöldum. Stemning og umgjörð Ice-Lagoon höllin er alltaf skemmtileg. Flott mæting í kvöld, góð stemning og skemmtilegur körfubolti. Áhorfendur létu vel í sér heyra og stuðningsmenn Tindastóls eiga hrós skilið fyrir góða mætingu. Bónus-deild karla Sindri Tindastóll