Einn leikskóli inn, annar út og starfsemin á flakki milli húsa Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 21:33 Aldís Björk Óskarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Borg, og Erna Guðlaugsdóttir, leikskólastjóri í Grandaborg og Hagaborg hafa staðið í ströngu ásamt samstarfsfólki sínu vegna flutninga. Sýn/samsett Þrátt fyrir boðaðar úrbætur með Reykjavíkurmódelinu svokallaða í leikskólamálum þarf meira til að leysa úr húsnæðis- og mönnunarvanda að sögn leikskólastjórnenda. Fréttastofa leit við á þremur leikskólum í dag þar sem flutningar standa yfir, ýmist vegna eftirleiks af völdum myglu eða yfirvofandi þakviðgerða.
Þegar fréttastofa var á ferðinni úti á Granda upp úr hádegi í dag var verið að tæma síðasta flutningabílinn með leikföngum og öðrum munum frá leikskólanum Hagaborg sem er að flytja inn í húsnæði leikskólans í Grandaborgar. Starfsemi leikskólans Hagaborgar hefur undan farin misseri verið í öðru húsnæði á nokkrum stöðum og börnin verið á sitthvorum staðnum í allnokkurn tíma. „Við í Hagaborg erum búin að vera á þremur stöðum. Upp á síðkastið höfum við verið með 30 börn á Fornhaga, 28 börn í Ármúla og 15 börn í Vörðuborg og nú erum við að sameinast öll hér,“ segir Erna Guðlaugsdóttir, leikskólastjóri. „Það er verið að hanna Hagaborg upp á nýtt, það er búið að gera teikningar og það fer væntanlega bara fljótlega í útboð.“ Árið 2023 fannst mygla í húsnæði Hagaborgar og var að sögn Ernu farið í alls konar mótvægisaðgerðir sem ekki dugðu til. „Þannig það endaði með því að við fórum af því það voru orðin svo mikil veikindi,“ segir Erna. Í dag fluttist starfsemi Hagaborgar þannig meðal annars úr bráðabirgðahúsnæði í Ármúla, en þangað flytur hins vegar leikskólinn Borg í Breiðholti strax eftir helgi. Á meðan var verið að flytja dót inn úr flutningabílum í Grandaborg, var verið að pakka niður í kassa á leikskólanum Borg þegar fréttastofa leit þar við stuttu síðar. „Við erum sem sagt að færa starfsemina í Ármúlann. Við erum bara með nokkur börn hjá okkur, það eru sem sagt skráningardagar þannig við náum að nýta aðeins tímann, það eru færri börn í húsi og erum að byrja, og erum að fara að flytja bara á mánudaginn,“ segir Aldís Björk Óskarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri á leikskólanum Borg við Maríubakka. „Það kom í ljós að einangrunin í þakinu hjá okkur, hún er upprunaleg, og það þarf að taka þakið í gegn.“Hún segir óljóst hversu lengi starfsemi Borgar verður hýst í Ármúla. „Þegar við erum búin að rýma húsið þá fara þeir út í nánari skoðun bara á ástandinu þannig við vitum í rauninni ekki meira,“ segir Aldís. En hvernig leggjast flutningarnir í krakkana? „Þau eru mjög spennt, og við erum líka búin að kynna þetta dálítið þannig fyrir þeim, að við erum að fara öll saman,“ segir Aldís. Erna tekur í svipaðan streng en í hennar leikskóla eru bæði börn og starfsfólk orðin nokkuð sjóuð í því að standa í flutningum. „Börnin eru ótrúleg hvað þau eru fljót að aðlagast. Þau eru búin að koma hingað í heimsókn og bíða spennt eftir að vera á sama stað og systkini sín og vinir sínir, þannig það verður bara frábært,“ segir Erna.
Leikskólar Reykjavík Húsnæðismál Skóla- og menntamál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira