Nemendur gangi ítrekað í skrokk á kennurum Smári Jökull Jónsson skrifar 19. október 2025 18:56 Sigrún Ólöf segir málin innan skólanna hafa þyngst verulega síðustu ár. Vísir/Bjarni Skólastjóri í grunnskóla segir nemendur ganga ítrekað í skrokk á kennurum. Dæmi séu um að kennarar hafi þurft að leita læknisaðstoðar og einn starfsmaður hafi sagt upp störfum innan við viku frá því hann byrjaði vegna daglegra barsmíða.
Þungum nemendamálum hefur fjölgað í skólakerfinu síðustu ár. Dæmi eru um nemendur sem hafa ítrekað gengið í skrokk á kennurum og hafa skólar jafnvel þurft að ráða öryggisvörð til að tryggja öryggi nemenda og starfsfólks. Skólastjórar upplifa að skólarnir séu að bregðast nemendum sem fá ekki pláss í sérúrræðum sem sótt er um. Skólastjóri í grunnskóla í Kópavogi lýsir í grein á Vísi alvarlegum atvikum í upphafi skólaárs. Þar segir að margsinnis hafi verið gengið í skrokk á starfsmönnum og sami nemandi hafi til dæmis lamið fjóra kennara. Kennarar í skólanum hafi vegna ofbeldis þurft að leita á læknavakt, verið fjarverandi í marga daga og einhverjir farið í löng veikindaleyfi. Þá hafi starfsmaður sagt upp innan við viku frá því hann hóf störf vegna daglegra barsmíða. „Í samtölum við fleiri stjórnendur í grunnskólum á landinu þá hef ég og fleiri dæmi varðandi börn sem eru með mjög miklar áskoranir og miklar stuðningsþarfir sem eiga erfitt með að vera í hinum hefðbundna grunnskóla. Þau eiga erfitt með að stýra tilfinningum sínum og hafa þá gripið í að lemja frá sér og sparka,“ sagði Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skólastjóri Hörðuvallaskóla í kvöldfréttum Sýnar. Málin að þyngjast innan skólanna Hún segir erfið mál innan skólanna hafa þyngst undanfarin ár. „Þungu málin fyrir fimm til tíu árum árum síðan eru meðalþung í dag. Það sem við sjáum er að úrræði utan skólanna eru af skornum skammti. Börn sem þurfa jafnvel úrræði á vegum barnaverndar, það er margra mánaða bið og ár og á meðan erum við að reyna að finan úrræði innan skólanna og það gengur ekki alltaf upp,“ sagði Sigrún Ólöf. Á hverju ári sé börnum vísað frá sérrúrræðum og sérskólum og sett í hefðbundinn grunnskóla þar sem nauðsynleg fagþjónusta sé ekki fyrir hendi. „Eins og þegar við erum að fá úthlutun útaf börnum sem eru með miklar stuðningsþarfir, þá er það úthlutun miðað við að ráða ungt skólafólk sem hefur ekki fagþekkingu á bakinu. Mörg þessara barna þyrftu kannski tvo fagmenn með sér til að aðstoða þau í hnium hefðbundna grunnskóla og það er það sem vantar.“ „Manni finnst mörkin hafa togast upp á við þannig að þetta er orðið eðlilegt, viljum við hafa þetta svona? Mér finnst þetta ekki eðlilegt og við þurfum aðeins að lækka rána.“ Hún segir atvik eins og þau sem hún nefnir í greininni hafa gríðarleg áhrif á kennara. „Það eru ekki allir sem bregðast eins við. Það getur verið áfall að vera laminn, þó það sé eftir barn. Ef einhver fer inn á þitt persónulega svið þá veistu ekki hvernig taugakerfið bregst við.“ Misskilið hugtak Sigrún Ólöf segir ljóst að skólakerfið ræður ekki við mál af þessum toga og telur að hugtakið um „Skóla án aðgreiningar“ sé misskilið. Skólarnir nái ekki að einbeita sér að öðrum þáttum skólastarfsins. „Normið er orðið mjög skrýtið og við finnum að við þurfum að koma þessu niður. Ég er búinn að vera hugsi yfir hugtakinu „skóli fyrir alla“ af því að þetta hefur verið pínu misskilið að mér finnst, margir horfa til þess að þegar við erum að hugsa um skóla fyrir alla að þá geti hvert barn verið í 25 manna bekk og allt verið frábært. Við þurfum fyrst fremst að mæta barninu sjálfu og það hentar ekki alltaf að vera í stórum bekk.“ Hún segir vandann liggja í því að kennarar og annað starfsfólk sé sett í þá stöðu að eiga að finna út úr þessum vanda hjá börnum innan skólanna. „Við erum í þeirri stöðu að passa bæði hagsmuni nemenda og kennara og ég finn það í tali við fleiri stjórnendur grunnskóla í landinu að það eru margir í sömu stöðu og við, og þegar maður finnur að maður getur ekki hjálpað öllum, þá finnst manni stundum að maður sé að bregðast.“
Skóla- og menntamál Grunnskólar Kópavogur Börn og uppeldi Ofbeldi barna Barnavernd Félagsmál Mest lesið Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Mætti ekki í útför föður síns Erlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Fannst látinn í tjaldi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Innlent Fleiri fréttir Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent