Úkraína hélt sér fyrir ofan Ísland Sindri Sverrisson skrifar 13. október 2025 20:42 Ruslan Malinovskyi hefur verið frábær fyrir Úkraínu í þessari landsleikjatörn. Getty/Jakub Porzycki Úkraína er áfram í 2. sæti í riðli Íslands í undankeppni HM karla í fótbolta, eftir 2-1 sigur gegn Aserbaísjan á heimavelli sínum í Póllandi.
Úkraína er því með sjö stig eftir fjórar umferðir af sex í D-riðli, þremur stigum á eftir Frakklandi en þremur fyrir ofan Ísland, eftir jafntefli Íslendinga og Frakka á Laugardalsvelli. Ruslan Malinovskyi, sem var sjóðheitur á Íslandi í 5-3 sigri Úkraínu á föstudaginn og skoraði þá tvö mörk, skoraði sigurmark Úkraínu í kvöld um miðjan seinni hálfleik, eftir frábæran samleik. Oleksii Hutsuliak hafði komið Úkraínu í 1-0 í fyrri hálfleik en Aserar jöfnuðu metin þegar Vitaliy Mykolenko varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Nazar Voloshyn virtist hafa komið Úkraínu í 3-1 seint í leiknum en markið var dæmt af eftir myndbandsskoðun. Ísland vann Aserbaísjan 5-0 og er enn með betri markatölu en Úkraína (+2 gegn +1), fyrir síðustu tvær umferðirnar í nóvember. Ísland sækir þá Asera fyrst heim og mætir svo Úkraínu í Póllandi en Úkraína fer fyrst til Frakklands. Verði lið jöfn að stigum ræður markatala lokastöðu en ekki innbyrðis úrslit, svo ef að Ísland nær að jafna Úkraínu að stigum eru yfirgnæfandi líkur á að Ísland endi ofar vegna markatölu. Sigurlið riðilsins kemst beint á HM en liðið í 2. sæti fer í umspil.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik Körfubolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Handbolti Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit Fótbolti Fleiri fréttir „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkar nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Sjá meira