Erlent

Tæp­lega þrjá­tíu drepin á meðan þau biðu eftir mat

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa
Gríðarleg hungursneyð er á Gasa.
Gríðarleg hungursneyð er á Gasa. EPA

Minnst tuttugu og sjö voru drepnir af ísraelska hernum þegar þeir biðu eftir mat og sex til viðbótar dóu úr hungri á Gasa í gær. 

Þetta hefur fréttastofa Guardian eftir palestínskum heilbrigðisyfirvöldum.

Samkvæmt vitnum skutu ísraelskir hermenn á hóp fólks sem freistaði þess að sækja sér mat á dreifingarstöð samtakanna GHF. Þau eru rekin af bandarískum yfirvöldum  og fá ein að dreifa matvælum á Gasaströndinni. Atvikið varð á suðurhluta strandarinnar.

„Ég gat ekki stoppað og aðstoðsað vegna skothríðarinnar,“ hefur fréttastofa AP eftir Yousef Abed. Hann segist hafa séð minnst þrjá, sem blæddi úr liggjandi á jörðinni.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem skotið hefur verið á örvæntingarfulla íbúa strandarinnar á meðan þeir sækja sér mat. Talið er að minnst 1.400 manns hafi verið drepnir á þennan máta síðan 27. maí, langflestir nærri dreifingarsvæðum GHF, samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum.

Alls voru 119 Gasabúar drepnir af ísraelskum hermönnum síðasta sólarhringinn samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Gasa. Sex til viðbótar létust úr hungri en segir heilbrigðisráðuneytið að alls hafi 175 látist úr hungri á meðan átökin hafa staðið yfir, langflestir þeirra á síðustu mánuðum. 

Ísraelsk yfirvöld neita því staðfastlega að hungursneyð sé á Gasa og sögðust ætla veita frekari aðgang að svæðinu fyrir mannúðaraðstoð. Hins vegar segja hjálparsamtök að Ísraelar séu enn að hindra aðgang mannúðaraðstoðar. 

Nauðsynjavörur látnar falla til jarðar á Gasaströndinni.EPA

Nokkur ríki hafa tekið upp á því að láta mat og aðrar nauðsynjavörur falla úr flugvélum til jarðar, meðal annars Marokkó, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Frakkland og Bretland.

Alls hafa tæplega 61 þúsund manns verið drepnir á Gasa frá því að átökin hófust með árás Hamas á tónlistarhátíð í Ísrael 7. október 2023.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×