Þeir bestu (8.-7. sæti): Markamaskínur frá Dalvík og Danmörku Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. maí 2025 10:00 Leikmennirnir sem enduðu í sætum 8 og 7. grafík/sara Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 8. og 7. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 8. Atli Viðar Björnsson Lið: FH Staða: Framherji Fæðingarár: 1980 Íslandsmeistari: 2004, 2005, 2006, 2008, 2009, 2012, 2015, 2016 Bikarmeistari: 2010 Leikir: 264 Mörk: 113 Stoðsendingar: 35 Fjórum sinnum í liði ársins Gullskór: 2013 Silfurskór: 2009 Bronsskór: 2010 Logi Ólafsson á mikið í árangri FH á þessari öld en hann reisti grunninn sem smiðurinn sjálfur, Ólafur Jóhannesson, byggði svo meistaralega ofan á. Þegar Logi tók við FH fyrir tímabilið 2010 fékk hann sem frægt er orðið Heimi Guðjónsson en einnig Frey Bjarnason, Ólaf Adolfsson og Jón Þorgrím Stefánsson. Fyrir næsta tímabil sótti hann síðan tvítugan Dalvíking sem átti heldur betur eftir að setja mark sitt (blikk, blikk) á sögu FH og sögu efstu deildar. Atli Viðar Björnsson skoraði 113 mörk í efstu deild, ekkert úr vítaspyrnu.vísir/bára Atli Viðar Björnsson skoraði 113 mörk í efstu deild og er einn sex í hundrað marka klúbbnum. En ferill hans í efstu deild fór ekki á alvöru flug fyrr en hann var 28 ára. Atli var mikið meiddur, í harðri samkeppni við frabæra framherja á borð við Allan Borgvardt og sumarið 2007 var hann meira að segja lánaður til Fjölnis í næstefstu deild. Þegar Heimir tók við þjálfun FH fyrir tímabilið 2008 urðu hins vegar vatnaskil á ferli Atla. Hann var krýndur aðalframherji liðsins og stóð svo sannarlega undir því. Næstu sex ár voru rosaleg hjá Dalvíkingnum. Hann fór fimm sinnum yfir tíu mörkin þar af fjögur ár í röð sem enginn annar hefur afrekað, gerði alls 67 deildarmörk og varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari. Steven Lennon tók við af Atla sem aðalframherji FH um mitt tímabil 2014 en hann fann samt leið til að verða að liði. Atli skoraði samtals fimmtán mörk 2015 og 2016 þrátt fyrir fáar mínútur og bætti tveimur Íslandsmeistaratitlum í safnið. Alls urðu þeir átta en Atli er sá eini sem hefur verið í öllum Íslandsmeistaraliðum FH. Níu stórir titlar, hundrað marka klúbburinn, sigurmarkið gegn Keflavík 2008 og þrír markaskór. Helvíti gott bara. 7. Patrick Pedersen Lið: Valur Staða: Framherji Fæðingarár: 1991 Íslandsmeistari: 2017, 2018, 2020 Bikarmeistari: 2015 Leikir: 196 Mörk: 122 Stoðsendingar: 42 Leikmaður ársins: 2018 Þrisvar sinnum í liði ársins Gullskór: 2015, 2017 Silfurskór: 2020, 2023 Bronsskór: 2024 Hvað svo sem gengur á hjá Val hefur alltaf verið hægt að ganga að einu vísu síðasta rúma áratuginn; Patrick Pedersen skorar og það mikið. Patrick Pedersen hefur fimm sinnum farið yfir tíu marka múrinn á tímabili, einn átta sem hafa afrekað það. vísir/daníel Þegar danski framherjinn hefur spilað tíu leiki eða fleiri hefur hann aðeins einu sinni skorað minna en átta mörk. Pedersen hefur hann fimm sinnum rofið tíu marka múrinn og tvisvar sinnum orðið markakóngur. Hann komst í hundrað marka klúbbinn í fyrra og það er ekki spurning hvort heldur hvenær hann slær markametið í efstu deild. Ekki er ólíklegt að það náist á þessu tímabili. Pedersen hefur ekki gengið neitt sérstaklega í sínum stuttu stoppum utan Íslands og hefur aðeins skorað eitt mark í tuttugu Evrópuleikjum. En hér heima í sínum þægindaramma er hann gríðarlega áreiðanlegur og ótrúlega stöðugur. Og gefur ekkert eftir. Í fyrra skoraði Pedersen sautján mörk sem er jöfnun á hans besta markatímabili í deildinni. Og það kæmi ekkert á óvart ef hann myndi toppa þennan markaárangur í sumar. Pedersen er ekki bara einn sá besti í að klára færin sín af þeim leikmönnum sem hafa spilað hér á landi. Hann er líka frábær uppspilspunktur, einstaklega góður að fá boltann í fætur með bakið í markið og annað hvort skila boltanum til baka eða snúa og þræða samherja sína í gegn. Besta deild karla Þeir bestu Tengdar fréttir Þeir bestu ( 10.-9. sæti): Hörkutól með hæfileika Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 10. og 9. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 21. maí 2025 10:00 Þeir bestu (15.-11.): Rótarskot frá Skotlandi og El Salvador, sögurnar af Sigga og gullfóturinn Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 15.-11. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 20. maí 2025 10:01 Þeir bestu (20.-16. sæti): Glæsilegur endir gamalla manna og dönsku demantarnir í Kaplakrika Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 20.-16. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 19. maí 2025 10:01 Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 25.-21. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 16. maí 2025 10:02 Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 40.-31. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 14. maí 2025 10:03 Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 50.-41. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 13. maí 2025 10:00 Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 60.-51. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 12. maí 2025 10:07 Þeir bestu: Fylgt úr hlaði Vísir gerðist stórhuga og ákvað að setja saman lista yfir sextíu bestu leikmenn efstu deildar karla frá 1992. Listinn yfir þessa sextíu leikmenn birtist á næstu dögum. 12. maí 2025 09:00 Mest lesið Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Enski boltinn UEFA logar í ljósi áforma Infantino: „Sál fótboltans ekki til sölu“ Fótbolti Sonurinn skaut móður sína Sport Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Sölvi keyptur til KR Íslenski boltinn „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Enski boltinn Kallaður fyrir þingnefnd vegna tengslanna við Trump Fótbolti „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport „Af hverju er þessi leikvangur ekki troðfullur í hvert einasta skipti?“ Fótbolti „Frábær leikmaður og skemmtilegur karakter sem við munum sakna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sara Björk leitar enn fyrsta sigursins Njarðvík marði botnliðið Stjarnan - Grindavík/Njarðvík 0-0 | Fer seint í sögubækurnar Þróttur - Víkingur 1-1 | Botnliðið náði í stig Tókst á við stjörnurnar í La Liga en heldur nú til Þórs Sölvi keyptur til KR „Frábær leikmaður og skemmtilegur karakter sem við munum sakna“ Sjáðu Ágúst Orra tryggja Breiðabliki sigur og viðhalda ótrúlegri tölfræði Freyja seld til Svíþjóðar Valdi tíu verstu augnablik Stjörnumanna á Skaganum: „Eins og þeir væru drukknir“ Dagskráin í dag: Bikarúrslitaliðin í eldlínunni „Góðir tímar framundan“ „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ „Mjög ánægður með margt í leiknum en óánægður með jafntefli“ Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Fyrirliði Njarðvíkur til Vals Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Aðstoðarþjálfari Jökuls í Vesturbæinn „Við eigum harma að hefna“ Sjáðu mörkin þegar ÍA kjöldró Stjörnuna Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Uppgjörið: FH-Fram 0-0 | Mörg mörk síðast en ekkert í kvöld Kláraði Harvard og samdi við Blika Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Sjá meira
8. Atli Viðar Björnsson Lið: FH Staða: Framherji Fæðingarár: 1980 Íslandsmeistari: 2004, 2005, 2006, 2008, 2009, 2012, 2015, 2016 Bikarmeistari: 2010 Leikir: 264 Mörk: 113 Stoðsendingar: 35 Fjórum sinnum í liði ársins Gullskór: 2013 Silfurskór: 2009 Bronsskór: 2010 Logi Ólafsson á mikið í árangri FH á þessari öld en hann reisti grunninn sem smiðurinn sjálfur, Ólafur Jóhannesson, byggði svo meistaralega ofan á. Þegar Logi tók við FH fyrir tímabilið 2010 fékk hann sem frægt er orðið Heimi Guðjónsson en einnig Frey Bjarnason, Ólaf Adolfsson og Jón Þorgrím Stefánsson. Fyrir næsta tímabil sótti hann síðan tvítugan Dalvíking sem átti heldur betur eftir að setja mark sitt (blikk, blikk) á sögu FH og sögu efstu deildar. Atli Viðar Björnsson skoraði 113 mörk í efstu deild, ekkert úr vítaspyrnu.vísir/bára Atli Viðar Björnsson skoraði 113 mörk í efstu deild og er einn sex í hundrað marka klúbbnum. En ferill hans í efstu deild fór ekki á alvöru flug fyrr en hann var 28 ára. Atli var mikið meiddur, í harðri samkeppni við frabæra framherja á borð við Allan Borgvardt og sumarið 2007 var hann meira að segja lánaður til Fjölnis í næstefstu deild. Þegar Heimir tók við þjálfun FH fyrir tímabilið 2008 urðu hins vegar vatnaskil á ferli Atla. Hann var krýndur aðalframherji liðsins og stóð svo sannarlega undir því. Næstu sex ár voru rosaleg hjá Dalvíkingnum. Hann fór fimm sinnum yfir tíu mörkin þar af fjögur ár í röð sem enginn annar hefur afrekað, gerði alls 67 deildarmörk og varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari. Steven Lennon tók við af Atla sem aðalframherji FH um mitt tímabil 2014 en hann fann samt leið til að verða að liði. Atli skoraði samtals fimmtán mörk 2015 og 2016 þrátt fyrir fáar mínútur og bætti tveimur Íslandsmeistaratitlum í safnið. Alls urðu þeir átta en Atli er sá eini sem hefur verið í öllum Íslandsmeistaraliðum FH. Níu stórir titlar, hundrað marka klúbburinn, sigurmarkið gegn Keflavík 2008 og þrír markaskór. Helvíti gott bara. 7. Patrick Pedersen Lið: Valur Staða: Framherji Fæðingarár: 1991 Íslandsmeistari: 2017, 2018, 2020 Bikarmeistari: 2015 Leikir: 196 Mörk: 122 Stoðsendingar: 42 Leikmaður ársins: 2018 Þrisvar sinnum í liði ársins Gullskór: 2015, 2017 Silfurskór: 2020, 2023 Bronsskór: 2024 Hvað svo sem gengur á hjá Val hefur alltaf verið hægt að ganga að einu vísu síðasta rúma áratuginn; Patrick Pedersen skorar og það mikið. Patrick Pedersen hefur fimm sinnum farið yfir tíu marka múrinn á tímabili, einn átta sem hafa afrekað það. vísir/daníel Þegar danski framherjinn hefur spilað tíu leiki eða fleiri hefur hann aðeins einu sinni skorað minna en átta mörk. Pedersen hefur hann fimm sinnum rofið tíu marka múrinn og tvisvar sinnum orðið markakóngur. Hann komst í hundrað marka klúbbinn í fyrra og það er ekki spurning hvort heldur hvenær hann slær markametið í efstu deild. Ekki er ólíklegt að það náist á þessu tímabili. Pedersen hefur ekki gengið neitt sérstaklega í sínum stuttu stoppum utan Íslands og hefur aðeins skorað eitt mark í tuttugu Evrópuleikjum. En hér heima í sínum þægindaramma er hann gríðarlega áreiðanlegur og ótrúlega stöðugur. Og gefur ekkert eftir. Í fyrra skoraði Pedersen sautján mörk sem er jöfnun á hans besta markatímabili í deildinni. Og það kæmi ekkert á óvart ef hann myndi toppa þennan markaárangur í sumar. Pedersen er ekki bara einn sá besti í að klára færin sín af þeim leikmönnum sem hafa spilað hér á landi. Hann er líka frábær uppspilspunktur, einstaklega góður að fá boltann í fætur með bakið í markið og annað hvort skila boltanum til baka eða snúa og þræða samherja sína í gegn.
Lið: FH Staða: Framherji Fæðingarár: 1980 Íslandsmeistari: 2004, 2005, 2006, 2008, 2009, 2012, 2015, 2016 Bikarmeistari: 2010 Leikir: 264 Mörk: 113 Stoðsendingar: 35 Fjórum sinnum í liði ársins Gullskór: 2013 Silfurskór: 2009 Bronsskór: 2010
Lið: Valur Staða: Framherji Fæðingarár: 1991 Íslandsmeistari: 2017, 2018, 2020 Bikarmeistari: 2015 Leikir: 196 Mörk: 122 Stoðsendingar: 42 Leikmaður ársins: 2018 Þrisvar sinnum í liði ársins Gullskór: 2015, 2017 Silfurskór: 2020, 2023 Bronsskór: 2024
Besta deild karla Þeir bestu Tengdar fréttir Þeir bestu ( 10.-9. sæti): Hörkutól með hæfileika Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 10. og 9. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 21. maí 2025 10:00 Þeir bestu (15.-11.): Rótarskot frá Skotlandi og El Salvador, sögurnar af Sigga og gullfóturinn Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 15.-11. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 20. maí 2025 10:01 Þeir bestu (20.-16. sæti): Glæsilegur endir gamalla manna og dönsku demantarnir í Kaplakrika Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 20.-16. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 19. maí 2025 10:01 Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 25.-21. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 16. maí 2025 10:02 Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 40.-31. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 14. maí 2025 10:03 Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 50.-41. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 13. maí 2025 10:00 Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 60.-51. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 12. maí 2025 10:07 Þeir bestu: Fylgt úr hlaði Vísir gerðist stórhuga og ákvað að setja saman lista yfir sextíu bestu leikmenn efstu deildar karla frá 1992. Listinn yfir þessa sextíu leikmenn birtist á næstu dögum. 12. maí 2025 09:00 Mest lesið Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Enski boltinn UEFA logar í ljósi áforma Infantino: „Sál fótboltans ekki til sölu“ Fótbolti Sonurinn skaut móður sína Sport Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Sölvi keyptur til KR Íslenski boltinn „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Enski boltinn Kallaður fyrir þingnefnd vegna tengslanna við Trump Fótbolti „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport „Af hverju er þessi leikvangur ekki troðfullur í hvert einasta skipti?“ Fótbolti „Frábær leikmaður og skemmtilegur karakter sem við munum sakna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sara Björk leitar enn fyrsta sigursins Njarðvík marði botnliðið Stjarnan - Grindavík/Njarðvík 0-0 | Fer seint í sögubækurnar Þróttur - Víkingur 1-1 | Botnliðið náði í stig Tókst á við stjörnurnar í La Liga en heldur nú til Þórs Sölvi keyptur til KR „Frábær leikmaður og skemmtilegur karakter sem við munum sakna“ Sjáðu Ágúst Orra tryggja Breiðabliki sigur og viðhalda ótrúlegri tölfræði Freyja seld til Svíþjóðar Valdi tíu verstu augnablik Stjörnumanna á Skaganum: „Eins og þeir væru drukknir“ Dagskráin í dag: Bikarúrslitaliðin í eldlínunni „Góðir tímar framundan“ „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ „Mjög ánægður með margt í leiknum en óánægður með jafntefli“ Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Fyrirliði Njarðvíkur til Vals Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Aðstoðarþjálfari Jökuls í Vesturbæinn „Við eigum harma að hefna“ Sjáðu mörkin þegar ÍA kjöldró Stjörnuna Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Uppgjörið: FH-Fram 0-0 | Mörg mörk síðast en ekkert í kvöld Kláraði Harvard og samdi við Blika Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Sjá meira
Þeir bestu ( 10.-9. sæti): Hörkutól með hæfileika Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 10. og 9. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 21. maí 2025 10:00
Þeir bestu (15.-11.): Rótarskot frá Skotlandi og El Salvador, sögurnar af Sigga og gullfóturinn Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 15.-11. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 20. maí 2025 10:01
Þeir bestu (20.-16. sæti): Glæsilegur endir gamalla manna og dönsku demantarnir í Kaplakrika Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 20.-16. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 19. maí 2025 10:01
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 25.-21. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 16. maí 2025 10:02
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 40.-31. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 14. maí 2025 10:03
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 50.-41. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 13. maí 2025 10:00
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 60.-51. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 12. maí 2025 10:07
Þeir bestu: Fylgt úr hlaði Vísir gerðist stórhuga og ákvað að setja saman lista yfir sextíu bestu leikmenn efstu deildar karla frá 1992. Listinn yfir þessa sextíu leikmenn birtist á næstu dögum. 12. maí 2025 09:00