Gular viðvaranir víðs vegar um landið Jón Þór Stefánsson skrifar 19. maí 2024 09:03 Hér má sjá gulu viðvarinarnar. Veðurstofa Íslands Gular viðvaranir eru víðs vegar um landið í dag. Sjö af þeim ellefu landshlutum sem Veðurstofan skiptir landinu í eru gulir á korti hennar í dag.
Það eru Suðurland, Faxaflói, Vestfirðir, Norðurland eystra, Austurland að glettingi, Austfirðir, og Suðausturland. Viðvörunin er ýmist vegna hvassviðris, storms eða hríðar. Fyrsta viðvörunin tók gildi klukkan 8:25 í morgun á Suðurlandi, en hún stendur yfir til klukkan níu í kvöld. Síðasta viðvörunin tekur gildi klukkan átta í kvöld og mun standa yfir til klukkan sex á morgun, mánudag. Í lýsingum Veðurstofunnar fyrir nokkra landshluta segir að varasamt sé fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind að vera á ferðinni. Þá er fólk hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum. „Lægð suðvestur í hafi kemur upp að Reykjanesi í dag. Henni fylgir allhvöss austanátt á sunnanverðu landinu, en stormur syðst. Heldur hægari norðanlands. Rigning á sunnanverðu landinun, en rigning eða slydda norðantil upp úr hádegi og snjókoma til fjalla. Færð gæti spillst seinnipartinn á fjallvegum á Norður- og Austurlandi og hafa verið gefnar út gular viðvaranir vegna þess, einning vegna vinds syðra,“ segir í hugleiðingu veðurfræðings.„Í kvöld og nótt fara skil lægðarinnar norður yfir land og veðrið skánar. Á morgun er útlit fyrir minnkandi sunnanátt með dálitlum skúrum, en nokkuð samfelldri rigningu á Suðausturlandi. Það hlýnar í veðri og hiti ætti að komast í 12 til 13 stig norðan- og austanlands.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á þriðjudag:Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir, en styttir upp um landið austanvert seinnipartinn. Hiti 6 til 12 stig.Á miðvikudag:Suðvestan 5-13 en austlæg átt 5-10 á Vestfjörðum. Skúrir á vestanverðu landinu en lengst af þurrt austanlands. Hiti breytist lítið.Á fimmtudag:Vestlæg átt 3-10 og stöku skúrir, en suðaustanátt og fer að rigna sunnan- og vestanlands undir kvöld. Hiti 3 til 10 stig.Á föstudag:Suðaustlæg átt og súld eða rigning sunnan- og vestanlands, en dregur úr úrkomu síðdegis. Bjart með köflum á Norður- og Austurlandi. Hiti 9 til 14 stig.Á laugardag:Útlit fyrir austlæga átt. Lítilsháttar væta um sunnan- og vestanvert landið en bjart að mestu fyrir norðan og austan. Hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Sjá meira