Íslenski boltinn

„Fórum af bensín­gjöfinni í staðin fyrir að gefa í”

Stefán Marteinn skrifar
Fanndís Friðriksdóttir og Katherine Cousins fagna innilega.
Fanndís Friðriksdóttir og Katherine Cousins fagna innilega. Vísir/Hulda Margrét

Valur lagði Tindastól með þremur mörkum gegn einu þegar þessi lið mættust í 5.umferð Bestu deild kvenna í dag. Fanndís Friðriksdóttir gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö af mörkum Íslandsmeistaranna sem lentu nokkuð óvænt undir.

„Ekkert svakalega [fagmannleg frammistaða] en við gerðum það sem þurfti. Þannig við erum bara sáttar að hafa unnið. Við þurfum eitthvað að skoða það hvernig við byrjum leikina, það er ekki alltaf hægt að fá á okkur mark svona til að koma okkur í gang,“ sagði Fanndís Friðriksdóttir leikmaður Vals eftir leikinn í dag en hún skoraði tvö mörk í dag.

Valur byrjaði leikinn sterkt og voru með yfirhöndina en lentu marki undir snemma.

„Ég eiginlega bara veit það ekki. Ég get ekki svarað fyrir það en við þurfum allavega að skoða þetta eitthvað.“

Það dró til tíðinda á 38. mínútu þegar Fanndís jafnaði leikinn fyrir Val og tveimur mínútum síðar var hún búin að koma Val yfir og þær leiddu í hálfleik.

„Mjög mikilvægt. Við vorum mikið með boltann og það vantaði svolítið bara að klára sóknirnar og það var gott að ná að klára og fara með eins marks forystu inn í hálfleik. Það er alltaf betra en að vera 1-0 undir.“

Fanndís fagnar með Katherine Cousins. Vísir/Anton Brink

Valur bætti við öðru marki í upphafi seinni hálfleiks og sigldi þægilegum sigri heim.

„Já ég er alveg sammála. Við fórum svolítið af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í. Við einhvern veginn smá svona hættum bara að reyna að skora. Þetta var svona frekar ‘bleh’ í restina.“

Fanndísi var skipt af velli þegar rúmlega korter var eftir af leiknum þegar hún var á þrennunni en viðurkenndi að hafa verið orðin þreytt.

„Auðvitað hefði ég vilja það. Ég var samt orðin svolítið þreytt ef ég á að segja alveg eins og er þannig þetta var bara góð skipting að fá ferska fætur inn og Ragga kom vel inn.“

Fanndís í baráttunni í dag.Vísir/Anton Brink



Fleiri fréttir

Sjá meira


×