Upp­gjörið og við­töl: Kefla­vík - Þróttur R. 1-0 | Fyrsti sigur Kefl­víkinga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Keflavík vann báða leikina gegn Þrótti á síðasta tímabili og vann svo leik liðanna á HS Orku vellinum í dag.
Keflavík vann báða leikina gegn Þrótti á síðasta tímabili og vann svo leik liðanna á HS Orku vellinum í dag. vísir/anton

Keflavík lyfti sér upp úr neðsta sæti Bestu deildar kvenna með 1-0 sigri á Þrótti suður með sjó í dag. Þetta var fyrsti sigur Keflvíkinga á tímabilinu.

Mark Melaine Claire Rendeiro eftir hornspyrnu á 70. mínútu skildi liðin að í bragðdaufum og lokuðum leik. Liðin fengu sitt hvort dauðafærið fram að marki Rendeiros.

Þrátt fyrir að hafa tuttugu mínútur til að jafna metin ógnuðu Þróttarar marki Keflvíkinga nánast ekki neitt. Raunar voru heimakonur nær því að bæta við marki og fengu dauðafæri til þess þegar Saorla Miller slapp í gegn en Mollee Swift varði.

Við úrslitin höfðu Keflavík og Þróttur sætaskipti. Keflvíkingar eru nú í 9. sæti deildarinnar með þrjú stig en Þróttarar á botninum með sitt eina stig.

Atvik leiksins

Rendeiro skoraði eina mark leiksins þegar tuttugu mínútur voru eftir. Hún tók hornspyrnu stutt, sendi á Susönnu Friedrichs sem gaf fyrir, Sæunn Björnsdóttir skallaði boltann frá en beint á Rendeiros sem skoraði með góðu vinstri fótar skoti í fyrsta.

Stjörnur og skúrkar

Rendeiro skoraði eina mark leiksins og Miller ógnaði oftsinnis með hraða sínum. Vörn Keflavíkur fær einnig plus í kladdann fyrir trausta frammistöðu og Varis var örugg í markinu og greip vel inn í þegar á þurfti.

Caroline Murray var hættulegasti leikmaður Þróttar og Sæunn átti mjög góðan leik fyrir utan mistökin sem hún gerði í markinu.

Dómarar

Óli Njáll Ingólfsson dæmdi rólegan leik vel. Lyfti gula spjaldinu tvisvar sinnum; í fyrra skiptið þegar Mollee Swift kastaði boltanum í hausinn á Leöh Pais og stöðvaði þar með skyndisókn og svo þegar Varis var of lengi að taka markspyrnu í uppbótartíma.

Stemmning og umgjörð

Ekki var margt um manninn á HS Orku vellinum í dag. Stemmningin og andinn var þó með ágætum og Keflvíkingar fóru sáttir heim.

Viðtöl

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira