Fótbolti

Þor­steinn skiptir um mark­vörð og tvo fram­herja

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fanney Inga Birkisdóttir kemur inn í byrjunarliðið.
Fanney Inga Birkisdóttir kemur inn í byrjunarliðið. EPA-EFE/Johnny Pedersen

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gerir þrjár breytingar á byrjunarliði íslenska liðsins fyrir fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2025.

Íslensku stelpurnar mæta Pólland á eftir á Kópavogsvellinum. Þrjár detta út úr liðinu sem vann Serbíu á sama stað í síðasta mánuði.

Markvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir og framherjarnir Bryndís Arna Níelsdóttir og Diljá Ýr Zomers koma inn í liðið en út fara markvörðurinn Telma Ívarsdóttir og framherjarnir Hlín Eiríksdóttir og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir.

Bryndís Arna kom inn á sem varamaður í Serbíuleiknum og skoraði sigurmarkið en Fanney Birna missti af þeim leik vegna meiðsla. Diljá Ýr hefur raðað inn mörkum í belgísku deildinni. 

Ingibjörg Sigurðardóttir er í byrjunarliðinu og spilar því sinn sextugasta landsleik í dag.

uefa.com
  • Byrjunarlið Íslands í leiknum:
  • Fanney Inga Birkisdóttir
  • Guðrún Arnardóttir
  • Glódís Perla Viggósdóttir
  • Ingibjörg Sigurðardóttir
  • Sædís Rún Heiðarsdóttir
  • Hildur Antonsdóttir
  • Alexandra Jóhannsdóttir
  • Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
  • Diljá Ýr Zomers
  • Bryndís Arna Níelsdóttir
  • Sveindís Jane Jónsdóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×