Fótbolti

Ein besta vin­konan í lands­liðinu orðin liðs­fé­lagi hennar í Sví­þjóð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlín Eiríksdóttir er ánægð með undirbúningstímabilið og líka nýja íslenska liðsfélagann.
Hlín Eiríksdóttir er ánægð með undirbúningstímabilið og líka nýja íslenska liðsfélagann. Vísir/Sigurjón

Landsliðsframherjinn Hlín Eiríksdóttir hefur verið í miklu stuði á undirbúningstímabilinu með Kristianstad í Svíþjóð en í dag verður hún í eldlínunni með íslenska landsliðinu í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2025.

Valur Páll Eiríksson hitti Hlín í aðdraganda leiksins á móti Póllandi en hann fer fram á Kópavogsvellinum í dag.

Hvernig hefur undirbúningurinn gengið fyrir nýtt tímabil?

„Það gengur bara vel og mér finnst við vera á góðum stað. Það voru vonbrigðarúrslit í bikarkeppninni í Svíþjóð sem er eiginlega spiluð á undirbúningstímabilinu. Ég held að það hafi samt verið mikilvægt fyrir okkur upp á lærdóm. ,“ sagði Hlín Eiríksdóttir.

„Mér líst bara mjög vel á framhaldið. Ég held að við séum í góðu flæði sem lið.,“ sagði Hlín og hún er ánægð með að fá Guðnýju Árnadóttir sem nýjan liðsfélaga í Kristianstad.

„Það er bara geggjað og alveg frábært. Í fyrsta lagi er hún ein af bestu vinkonunum mínum í landsliðinu og þetta er því ótrúlega gaman fyrir mig. Svo er hún leikmaður sem passar vel inn í okkar leikskipulag. Ég held að hún eigi eftir að nýtast okkur ótrúlega vel enda er hún búin að standa sig vel fyrstu vikurnar,“ sagði Hlín.

Hlín hefur verið að skora mikið af mörum á undirbúningstímabilinu. Kemur hún ekki bara í fínu standi inn í þetta landsliðsverkefni?

„Jú algjörlega. Mér finnst ég vera búin að eiga gott undirbúningstímabil og búin að vera í flæði allt undirbúningstímabilið. Ég er með hörkusjálfstraust og vonandi get ég tekið það með mér hingað,“ sagði Hlín.

Hvernig leik er hægt að búast við á móti Póllandi?

„Ég held að þetta verði mjög erfiður leikur. Núna þegar við erum að spila í þessari A-deild þá eru allir leikir mjög erfiðir. Ég vonast til þess að við getum sýnt góða frammistöðu og ég held að við getum sannarlega unnið þær á góðum degi,“ sagði Hlín.

Það má horfa á allt viðtalið hér fyrir neðan.

Klippa: Hlín: Ég er með hörkusjálfstraust



Fleiri fréttir

Sjá meira


×