Íslenski boltinn

Grind­víkingar leggja niður yngri flokka

Valur Páll Eiríksson skrifar
grindavik_leiknirr_020616_018

Knattspyrnudeild Grindavíkur sendi frá sér yfirlýsingu síðdegis þar sem greint er frá því að ekki verði unnt að starfrækja starf yngri flokka hjá félaginu í ljósi stöðunnar í bænum.

„Það er með mikilli sorg sem við þurfum að gefa það út að yngri flokka starfið okkar í 7., 6., 5., og 4. flokki karla og kvenna verður aflagt frá og með 1. maí nk.“ segir í yfirlýsingunni.

Rýming Grindavíkurbæjar sökum eldgoss skýri niðurstöðuna. Frá áramótum hafi æfingasókn dalað allverulega og þá hafi félagsskiptum frá félaginu fjölgað.

„Þar sem forsendur okkar breyttust mikið í janúar og fjölskyldur ekki á leið aftur til Grindavíkur í vor eins og vonir stóðu til þá eru allar forsendur  til að halda þessu starfi áfram brostnar,“

„Þessi ákvörðun var mjög erfið en í raun búið að taka hana fyrir okkur með síminnkandi æfingasókn,“ segir í yfirlýsingu knattspyrnudeildar Grindavíkur. Jafnframt er tekið fram að starf 3. og 2. flokks haldi áfram og boðað hefur verið til foreldrafundar til að ræða næstu skref eftir páska.

Úr 160 í 80 á skotstundu

Þorfinnur Gunnlaugsson, formaður barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar Grindavíkur, tjáði sig einnig um málið á Facebook-síðu yngri flokkastarfs félagsins. Hann fer þar yfir stöðu mála síðustu mánuði en aðeins níu dögum eftir eldgosið sem hófst 10. nóvember var starf komið á fullt.

„19.nóvember eða rúmri viku eftir rýmingu hefjast æfingar hjá öllum yngri flokkunum okkar sem er ótrúlegt afrek og sannaði hvað Grindavík sem klúbbur er gríðalega heppinn með fólkið sem er í kringum knattspyrnuhreyfinguna hjá okkur.“

„Við náðum að halda úti starfi þar sem um 160 iðkendur voru að sækja æfingar hjá okkur og sá maður gleðina hjá börnunum okkar við það að æfa sem Grindavík og spila sem Grindavík.“

Eftir mannskætt slys í bænum og eldgos innanbæjar í janúar hafi hlutirnir aftur á móti breyst hratt.

„Árið sem byrjaði með 160 iðkendum eru komnir niður í 80 og enn fækkar hratt. Félagsskipti farin að eiga sér stað og fólk farið að færa sig um lið, nær sinni búsetu og fleira. Staðan í dag er sú að búið er að taka ákvörðun í samráði við UMFG og Grindavíkurbær að í lok apríl erum við knúin til að hætta starfsemi yngri flokkana frá 4. flokk og niður,“ segir Þorfinnur.

Fleira kemur fram í færslu hans sem má sjá að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×