Fótbolti

Ungstirnið brjálað eftir tapið gegn Ís­landi og ljót hróp rann­sökuð

Sindri Sverrisson skrifar
Oscar Gloukh með boltann í leiknum við Ísland í Búdapest í gærkvöld.
Oscar Gloukh með boltann í leiknum við Ísland í Búdapest í gærkvöld. Getty/Alex Nicodim

Hinn 19 ára gamli Oscar Gloukh, vonarstjarna Ísraela og leikmaður RB Salzburg, var vægast sagt illur eftir tapið gegn Íslandi í gærkvöld. Hann strunsaði inn til búningsklefa og lét ljót orð falla í leikmannagöngunum.

Það kom mjög á óvart að Gloukh skyldi ekki fá sæti í byrjunarliði þjálfarans Alon Hazan í gær. Hann kom aftur á móti inn á sem varamaður í upphafi seinni hálfleiks, þegar Ísland var komið í 2-1, en tókst ekki að koma í veg fyrir 4-1 sigur íslenska liðsins.

Sport 5 í Ísrael segir að ísraelska knattspyrnusambandið muni skoða hvað gekk á í leikmannagöngunum eftir leik, og segir að þar hafi Gloch heyrst kalla eitthvað á borð við: „Hópur af fatlafólum.“

Gloukh, sem skorað hefur þrjú mörk í ellefu A-landsleikjum, vann silfur með U19-landsliði Ísraels á EM fyrir tveimur árum, skoraði þrjú mörk og var valinn í lið mótsins.

Miklar vonir eru því bundnar við þennan unga landsliðsmann og Sport 5 segir að hann hafi verið æfur þegar landsliðsþjálfarinn tilkynnti að hann yrði ekki í byrjunarliðinu gegn Íslandi.

Gloukh veitti hins vegar ekki viðtöl eftir tapið í gær. Þjálfarinn Hazan var aftur á móti krafinn svara um af hverju miðjumaðurinn ungi fékk ekki sæti í byrjunarliðinu:

„Ég kenni sjálfum mér ekki um neitt. Við gerðum vel í byrjun leiksins en ég mun skoða þetta betur. Oscar átti að auka hraðann þegar hann kom inn og gerði vel. Við ákváðum að gera breytingu í hálfleik og bæði Oscar og aðrir færðu liðinu aukinn kraft í upphafi seinni hálfleiks. En svona er að vera þjálfari, ég tek ákvarðanir sem ég tel réttar hverju sinni,“ sagði Hazan sem ísraelskir miðlar segja að verði nú rekinn.


Leikur Úkraínu og Íslands verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport þriðjudaginn 26. mars. Leikurinn hefst klukkan 19.45 en upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 19.10.


Tengdar fréttir

„Maður vinnur sér inn heppni“

Åge Hareide var hæstánægður eftir 4-1 sigur Íslands á Ísrael í kvöld en sigurinn tryggir Íslandi sæti í úrslitaleik gegn Úkraínu á þriðjudag. Sigurliðið fer á Evrópumótið í Þýskalandi næsta sumar.

Einkunnir Íslands: Albert bar af í endurkomunni

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann magnaðan 4-1 sigur er liðið mætti Ísrael í undanúrslitum í umspili um laust sæti á EM sem fram fer í Þýskalandi í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×