Fótbolti

Kallaður til fyrir úr­slita­leikinn vegna meiðsla og ó­vissu

Sindri Sverrisson skrifar
Stefán Teitur Þórðarson hefur spilað nítján A-landsleiki.
Stefán Teitur Þórðarson hefur spilað nítján A-landsleiki. Getty/Alex Nicodim

Åge Hareide hefur ákveðið að bæta Stefáni Teiti Þórðarsyni í íslenska landsliðshópinn fyrir úrslitaleikinn við Úkraínu næsta þriðjudag, um sæti á EM í fótbolta.

Stefán Teitur, sem er leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Silkeborg, verður því 25. maðurinn í íslenska hópnum.

Hareide var búinn að greina frá því á blaðamannafundi síðasta föstudag að Stefán Teitur væri til taks ef kalla þyrfti til miðjumann. Frá þessu sagði Hareide í tengslum við spurningar um fjarveru Gylfa Þórs Sigurðssonar, þegar hann svaraði því neitandi hvort möguleiki væri á að Gylfi yrði kallaður til á milli leikja.

Arnórarnir meiddust

Sem stendur hefur enginn verið sendur heim úr íslenska hópnum en fyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson var ekki með í sigrinum frækna gegn Ísrael í gærkvöld, vegna meiðsla.

Arnórarnir tveir, Arnór Ingvi Traustason og Arnór Sigurðsson, fóru auk þess meiddir af velli í leiknum í gær.

Arnór Sigurðsson meiddist í ökkla við skelfilega tæklingu þegar Roy Revivo fékk rautt spjald í seinni hálfleik. Hann sagði við Fótbolta.net í gærkvöld að ökklinn liti ekkert allt of vel út en að vonandi væru meiðslin minni en menn héldu. Arnór Ingvi kenndi sér meins aftan í læri en kvaðst vonast til þess að ekki væri um tognun að ræða.

Stefán Teitur, sem er 25 ára, er fjórði Skagamaðurinn í íslenska hópnum. Spili hann á þriðjudaginn yrði það hans tuttugasti A-landsleikur.


Leikur Úkraínu og Íslands verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport þriðjudaginn 26. mars. Leikurinn hefst klukkan 19.45 en upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 19.10.


Tengdar fréttir

„Maður vinnur sér inn heppni“

Åge Hareide var hæstánægður eftir 4-1 sigur Íslands á Ísrael í kvöld en sigurinn tryggir Íslandi sæti í úrslitaleik gegn Úkraínu á þriðjudag. Sigurliðið fer á Evrópumótið í Þýskalandi næsta sumar.

Einkunnir Íslands: Albert bar af í endurkomunni

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann magnaðan 4-1 sigur er liðið mætti Ísrael í undanúrslitum í umspili um laust sæti á EM sem fram fer í Þýskalandi í sumar.

Samfélagsmiðlar yfir leiknum: Ísland fer á EM

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætti því ísraelska í undanúrslitum umspilsins um laust sæti á EM sem fram fer í Þýskalandi nú í sumar. Eins og svo oft áður voru Íslendingar virkir á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, á meðan leik stóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×