Fótbolti

Vill hafa sér­stakar gætur á Blikabana í kvöld

Sindri Sverrisson skrifar
Eran Zahavi (lengst til hægri á mynd), markahrókur Ísraela, skoraði á Kópavogsvelli í vetur í leik sem mótmælendur með fána Palestínu settu sterkan svip á.
Eran Zahavi (lengst til hægri á mynd), markahrókur Ísraela, skoraði á Kópavogsvelli í vetur í leik sem mótmælendur með fána Palestínu settu sterkan svip á. vísir/Anton

Það er ekki mikið um heimsþekkt nöfn í landsliði Ísraela, ekki frekar en því íslenska, en landsliðsþjálfarinn Åge Hareide vill að sínir menn hafi sérstakar gætur á 36 ára gömlum framherja mótherjanna í Búdapest í kvöld.

Ísrael og Ísland mætast í undanúrslitum EM-umspils karla í fótbolta í kvöld og hefst leikurinn klukkan 19:45, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Byggir á leiknum við Portúgal

„Planið er að vera vel skipulagðir,“ segir Hareide í viðtali við Stefán Árna Pálsson úti í Búdapest.

„Við mættum mjög erfiðum mótherjum í síðasta leik undakeppninnar í Portúgal (í nóvember), og munum halda okkur við sama leikskipulag. Ég held að leikmönnunum líði best í þeirri uppstillingu. Við verðum að vinna saman, ekki gera nein kjánaleg mistök sem gefa auðveld mörk, og reyna að vera skipulagðir allar níutíu mínúturnar,“ segir Hareide. Leikurinn gæti þó orðið 120 mínútur og úrslitin jafnvel ráðist í vítaspyrnukeppni.

„Hann er gamall en veit hvar markið er“

Spurður út í ísraelsku andstæðingana nefndi Norðmaðurinn sérstaklega hinn 36 ára gamla Eran Zahavi, framherja Maccabi Tel Aviv, sem skorað hefur 34 mörk í aðeins 73 landsleikjum. Hann er framherji Maccabi Tel Aviv og skoraði í báðum leikjum liðsins gegn Breiðabliki í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu í vetur.

„Ef þeir fá pláss til að spila þá gera þeir það og nýta sér slík tækifæri. Þeir eru með mikinn markaskorara í Zahavi, hann er stórt nafn í hópnum. Hann er gamall en veit hvar markið er. Við verðum að hafa gætur á honum.

En fyrst og fremst þurfum við að vera við sjálfir, og reyna að efla hvern leikmann til að eiga góðan leik. Það er það eina sem við getum gert, vera skipulagðir og með góðan liðsanda. Þetta er frábært tækifæri fyrir okkur,“ segir Hareide en Ísland er tveimur sigrum frá því að komast á stórmót í þriðja sinn í sögunni.

Viðtalið við Hareide, sem tekið var í gær, má sjá hér að neðan. Þar segir hann engin sérstök meiðsli í íslenska hópnum en nú er ljóst að fyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson missir af leiknum vegna meiðsla.

Klippa: Åge um leikinn gegn Ísrael

Leikur Ísraels og Íslands verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport fimmtudaginn 21. mars 2024. Leikurinn hefst klukkan 19.45 en upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 19.10.


Tengdar fréttir

Ísraelskir blaðamenn þjörmuðu að Åge

Ísraelskir blaðamenn spurðu íslenska landsliðsþjálfarann út í stríðið á milli Ísraels og Hamas-samtakanna á blaðamannafundi liðsins fyrir mikilvægan leik á morgun. Fundurinn var fljótur að verða pólítískur og ísraelskir blaðamenn þjörmuðu að Åge Hareide landsliðsþjálfara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×