Fótbolti

Stjóri Union Berlin ýtti tvisvar í and­litið á Sané

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nenad Bjelica ýtir í andlit Leroys Sané.
Nenad Bjelica ýtir í andlit Leroys Sané. getty/Stefan Matzke

Nenad Bjelica, knattspyrnustjóri Union Berlin, var rekinn af velli fyrir að ýta tvisvar í andlitið á Leroy Sané, leikmanni Bayern München, í leik liðanna í þýsku úrvalsdeildinni í gær.

Þegar um stundarfjórðungur var eftir af leiknum í gær fór boltinn út fyrir hliðarlínu hjá varamannabekk Union Berlin. Sané dreif sig að ná í boltann en Bjelica reif hann af honum. 

Þegar Sané reyndi að ná boltanum af Bjelica ýtti stjórinn tvisvar í andlit leikmannsins. Fleiri blönduðu sér í málið og upp úr sauð á hliðarlínunni.

Dómari leiksins, Frank Willenborg, rak í kjölfarið Bjelica af velli og gaf Sané gult spjald. Bjelica róaðist ekkert við þetta og reifst og skammaðist þegar hann fór upp í stúku.

Eftir leikinn sagðist Bjelica skilja af hverju hann var rekinn út af en neitaði að biðja Sané afsökunar.

Bayern vann leikinn, 1-0, með marki Raphaëls Guerreiro í seinni hálfleik. Með sigrinum minnkaði Bayern forskot Bayer Leverkusen á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar niður í fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×