Fótbolti

Ísak skoraði í svekkjandi jafn­tefli

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ísak Bergmann skoraði fyrra mark Fortuna Düsseldorf í dag.
Ísak Bergmann skoraði fyrra mark Fortuna Düsseldorf í dag. Vísir/Getty

Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði fyrra mark Fortuna Düsseldorf er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Hertha Berlin í þýsku B-deildinni í knattspyrnu í dag.

Ísak jafnaði metin í 1-1 á 44. mínútu leiksins eftir að Haris Tabakovic hafði komið heimamönnum yfir eftir um hálftíma leik.

Það voru þó heimamenn sem fóru með forystu inn í hálfleikinn því Derry Scherhant kom Berlínarmönnum yfir á nýjan leik með marki á fyrstu mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Christos Tzolis jafnaði svo metin fyrir Düsseldorf með marki úr vítaspyrnu á 50. mínútu. Hann fékk svo tækifæri til að koma liðinu yfir sex mínútum síðar úr annarri vítaspyrnu, en í þetta sinn brást honum bogalistinn og staðan því enn jögn, 2-2.

Það urðu að lokum lokatölur leiksins og liðin skiptu því stigunum á milli sín. Ísak og félagar sitja nú í fimmta sæti deildarinnar með 31 stig eftir 18 leiki, fimm stigum meira en Hertha Berlin sem situr í áttunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×