Lífið

Þessi var sendur heim úr Idolinu

Boði Logason skrifar
Átta keppendur kepptu á fyrsta úrslitakvöldi Idol sem haldið var í Idol-höllinni í gærkvöldi. Keppnin var í beinni útsendingu á Stöð 2.
Átta keppendur kepptu á fyrsta úrslitakvöldi Idol sem haldið var í Idol-höllinni í gærkvöldi. Keppnin var í beinni útsendingu á Stöð 2. Gotti B

Fyrsti þátturinn í beinni útsendingu Idolsins fór fram í Idolhöllinni í gærkvöldi. Þátturinn var æsispennandi en átta keppendur mættu til leiks. Aðeins sjö komust áfram og var því einn keppandi sendur heim eftir kvöldið.

Þema kvöldsins var „íslensk lög“ og keppendur fluttu lög sem endurspegluðu tónlistarstíl þeirra, í því skyni að leyfa áhorfendum að kynnast þeim enn betur.

Í fyrsta skipti voru örlög keppenda í höndum áhorfenda. Áður hafði dómnefnd valið keppendur áfram en nú í kvöld og í næstu þáttum Idolsins fær landinn að kjósa í símakosningu.

Met var slegið í símakosningunni en aldrei hafa áður borist jafn mörg atkvæði í sögu keppninnar.

*Höskuldarviðvörun - ef þú hefur ekki horft á Idol þátt gærkvöldsins - ekki lesa lengra.*

Þegar niðurstaða úr símakosningunni var kynnt kom í ljós að það var söngkonan Rakel sem þurfti að taka pokann sinn en hún flutti lagið Farin sem hljómsveitin Skítamórall gerði ódauðlegt á sínum tíma. 

Rakel fékk mjög jákvæða umsögn frá dómurnum og sagði Herra Hnetusmjör meðal annars að flutningurinn hefði verið óaðfinnanlegur. Birgitta Haukdal var á sama máli og sagði:  „Þú dregur mann til þín, mér finnst ég svífa til þín. Þú hefur þennan x-factor sem svo margir eru að leita að. Þetta var æðislega fallegt,“ sagði hún.

Rakel var fyrsti keppandinn sem sendur var heim. Gærkvöldið var það fyrsta sem fór fram í beinni útsendingu.Gotti B

„Þetta var frábært kvöld, en þetta er keppni og það verður einhverjum að vera vísað úr keppninni. Það eru bara reglurnar og við verðum bara að kyngja því þó okkur langar ekki að senda einn einasta keppanda heim,“ sagði dómarinn Daníel Ágúst áður en símakosningin hófst.

Nú eru sjö keppendur eftir í Idolinu þau  Elísabet, Stefán Óli, Birgitta, Ólafur Jóhann, Jóna Margrét, Björgvin og Anna Fanney.

Næsta úrslitakvöld fer fram næstkomandi föstudagskvöld, aftur í beinni útsendingu frá Fossaleyni. 


Tengdar fréttir

Lygilegur flutningur hjá Birgittu

Á föstudaginn kom í ljós hvaða átta keppendur það eru sem tryggðu sér sæti í úrslitakeppni Idol sem sýnd verður í beinni útsendingu og hefjast þær útsendingar á föstudagskvöldið.

Uppselt á fyrsta úrslitakvöld Idol

Fyrsta úrslitakvöld Idol fer fram á föstudaginn næstkomandi í Fossaleyni. Um er að ræða fyrsta þáttinn sem verður í beinni útsendingu á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×