Fótbolti

Sjáðu markið hjá Svein­dísi í endur­komu­leiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir er komin aftur inn á völlinn sem eru frábærar fréttir.
Sveindís Jane Jónsdóttir er komin aftur inn á völlinn sem eru frábærar fréttir. Youtube/VfL Wolfsburg

Sveindís Jane Jónsdóttir lék í gær sinn fyrsta leik í næstum því fjóra mánuði og íslenska landsliðskonan byrjaði vel.

Sveindís skoraði fyrra mark Wolfsburg í 2-0 sigri á TSG Hoffenheim í æfingarleik. Leikurinn fór fram á Algarve í Portúgal þar sem þýska liðið er í æfingarbúðum.

Sveindís skoraði markið sitt á tólftu mínútu leiksins eftir að hafa fengið stungusendingu frá Jule Brand inn fyrir vörnina og klárað færið vel.

Sveindís spilaði fyrri hálfleikinn í leiknum. Þetta var hennar fyrsti leikur síðan hún meiddist í september.

Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá leiknum og auðvitað markið hjá okkar konu. Markið hennar kemur eftir rúma hálfa mínútu af myndbandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×